Hoppa yfir valmynd
28. maí 2021 Forsætisráðuneytið

Skýrsla um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir lögð fram

Stýrihópur um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir sem forsætisráðherra skipaði í júní 2020 hefur skilað lokaskýrslu sinni og lagði ráðherra hana fram á fundi ríkisstjórnar í morgun. Markmið með starfi hópsins var að stuðla að því að nýting lands og réttinda sem því tengjast sé hagað í samræmi við landkosti og með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi, að teknu tillit til efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra sjónarmiða.

Stýrihópurinn var skipaður í framhaldi af vinnu sem forsætisráðherra setti af stað haustið 2019 við vinnslu frumvarps um breytingar á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna sem samþykkt var á Alþingi sumarið 2020 og varð að lögum nr. 85/2020.

Verkefni stýrihópsins var í meginatriðum tvíþætt:

  1. Fylgja eftir innleiðingu framangreindra laga nr. 85/2020, einkum er varðar skráningu lands í landeignaskrá Þjóðskrár Íslands, beiðnir til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um samþykki vegna kaupa á landi í ákveðnum tilvikum og upplýsingagjöf til Skattsins um endanlegt eignarhald tiltekinna lögaðila sem eiga land.
  2. Vinna frekari stefnumótun og setja fram tillögur um aðgerðir í þeim tilgangi að styrkja enn frekar heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir. Voru þar sett í forgang atriði er varða forkaupsrétt ríkissjóðs að landi á grundvelli sjónarmiða um vernd náttúru og menningarminja, ákvæði um sameign margra eigenda á landi, löggjöf um merki lands og skráningu þeirra með tilliti til nútímakrafna og loks frekari endurskoðun á lögum um eignarétt og afnotarétt fasteigna nr. 19/1966. Tillögur stýrihópsins er varða þessi atriði voru afhent forsætisráðherra í formi lagafrumvarps sem afgreitt var úr ríkisstjórn þann 23. apríl síðastliðinn og nánar er fjallað um í skýrslunni og birt í viðauka hennar.

Hópurinn setur fram greiningar og yfirlit yfir stöðu þeirra atriða sem ekki er fjallað um í frumvarpinu en honum var falið að fjalla um skv. skipunarbréfi. Markmiðið er að styrkja forsendur fyrir nánari umræðu, stefnumótun eða ákvarðanatöku og má þar nefna rýni á fjárfestingum í innviðum, landnýtingu og vægi landbúnaðar, viðhald byggðar og ræktanlegs lands og skilyrði um búsetu eða nýtingu. Þar er m.a. leitað svara við spurningum um gagnsæi, samræmi í löggjöf og stjórnsýslu, settar fram hugmyndir um næstu skref og vakin athygli á álitamálum er þessa þætti varða.

Ljóst er að löggjöf og stjórnsýsla varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir er viðvarandi verkefni margra opinberra aðila, ráðuneyta, stofnanna og sveitarfélaga og brýn þörf á þverlægu samstarfi um þessi mál. Skýrsla stýrihópsins er mikilvægt framlag í því efni.

Í hópnum sátu fulltrúar frá forsætisráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, utanríkisráðuneyti, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Skattinum, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Þjóðskrá, Skipulagsstofnun, Byggðastofnun auk tveggja sérfræðinga á sviði lögfræði.

 

Skýrsla stýrihóps um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum