Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Sérstakir frístundastyrkir út árið og sótt um gegnum Sportabler

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur framlengt sérstaka frístundastyrki fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og verður nú hægt að sækja um styrki út árið 2021. Þá hefur félagsmálaráðuneytið einnig gengið frá samningi við Abler um að hægt verði að sækja um styrkina með sambærilegum hætti og hefðbundinn frístundastyrk sem sveitarfélögin veita, eða við skráningu barns í íþrótt eða tómstund gegnum rafrænt skráningarkerfi Sportabler. Prófanir á virkni Sportabler eru í gangi og stefnt er á að opna fyrir umsóknir í byrjun næstu viku.

Sportabler fer með mikinn meirihluta skráninga í tómstundir og er langyfirgripsmesta forritið þar sem hægt er að skrá tómstundir barna. Markmiðið með samningnum er að ná sem allra víðast og einfalda lífið fyrir sem flesta.

Hægt er að sækja sérstakan frístundastyrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2006-2015 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 787.200 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júní 2021. Styrkurinn er 25.000 kr. á hvert barn til áramóta og rúmlega 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Stefnt er á að veita sams konar styrk eftir áramót.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Það er mikið gleðiefni að við höfum náð samningum við Sportabler og með því að gera fólki kleift að sækja sérstakan frístundarstyrk í appinu einföldum við ferlið til muna. Nú er hægt að sækja um bæði námskeið og styrkinn á einum og saman staðnum. Við vitum að þegar þrengir að fjárhagslega hjá fjölskyldum er hætta á að þær dragi úr þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi, en slík þátttaka hefur  forvarnargildi. Með þessum frístundastyrk erum við að grípa inn með markvissum hætti til að koma í veg fyrir brottfall hjá krökkum í íþróttum og tómstundum.”

Markús Máni M. Maute, framkvæmdastjóri Abler: „Við hjá Abler erum ánægð og stolt af því að geta stutt við þetta mikilvæga verkefni. Þessi samvinna auðveldar fólki að fá réttmætan stuðning eftir þörfum, og stuðlar að því að sem flestir hafi aðgang að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, sem eins og rannsóknir hafa margoft sýnt - stuðlar að betra samfélag fyrir okkur öll að búa í. Mig langar að hrósa félagsmálaráðuneytinu og þeim stofnunum sem koma að þessu verkefni fyrir framsýnt og lausnamiðað samstarf, og jafnframt þakka fyrir það traust sem okkur er sýnt og gerir okkur þátttakendur í því að stuðla að gagnadrifinni framþróun í lýðheilsumálum á Íslandi.”

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum