Hoppa yfir valmynd
2. september 2021 Utanríkisráðuneytið

Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna í Afganistan rædd á ráðherrafundi

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra - myndHaraldur Guðjónsson
Þróunarsamvinnuráðherrar Norðurlanda og framkvæmdastjóri Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) ræddu stöðuna í Afganistan á sérstökum fjarfundi í dag. Áframhaldandi starf stofnana Sameinuðu þjóðanna í landinu, og aðgerðir landanna á sviði mannúðaraðstoðar voru til umræðu, sem og möguleikinn á langtímaþróunarsamvinnu í Afganistan. 

„Það er brýnt að alþjóðasamfélaginu takist að tryggja áframhaldandi mannúðaraðstoð og aðgengi í landinu á þessum óvissutímum en um leið þarf að huga að því að vernda lífsviðurværi afgönsku þjóðarinnar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnráðherra. „Norðurlöndin eru einhuga um að leggja sitt af mörkum í þeirri flóknu stöðu sem upp er komin í góðu samstarfi við stofnanir Sameinuðu þjóðanna.“

Þróunarsamvinnuráðherrarnir munu halda samtali sínu áfram og byggja á góðri samvinnu ríkjanna til að samræma aðgerðir, þá sérstaklega hvað varðar mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu í Afganistan. Ráðgert er að efna til frekari viðræðna á þessum vettvangi á næstunni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum