Hoppa yfir valmynd
7. september 2021 Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið

Skýrsla gefin út um störf án staðsetningar

Skýrsla um stöðu og framtíðarhorfur verkefnisins Störf án staðsetningar hefur verið gefin út á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytis, forsætisráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Verkefnið er hluti af byggðaáætlun 2018-2024 en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að ráðuneytum og stofnunum þeirra verði falið að skilgreina störf og auglýsa þau án staðsetningar eins og kostur er, þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki. Markmið verkefnisins er að efla byggðir landsins og að sporna við fækkun íbúa á einstökum svæðum og gera atvinnulíf fjölbreytilegra.

Greining á stöðugildum ráðuneyta og ríkisstofnana á höfuðborgarsvæðinu leiddi í ljós að í heild væri mögulegt að auglýsa um 10% starfa án staðsetningar, en það er í takt við markmið í gildandi byggðaáætlun. Alls skiluðu 100 stofnanir greiningu á stöðugildum og töldu mögulegt að auglýsa allt að 840 störf án staðsetningar. Niðurstöður einstakra stofnana eru birtar í skýrslunni en þeim er raðað eftir ráðuneytum, sem þau heyra undir.

Vefkönnun var lögð fyrir forstöðumenn ríkisstofnana til að kanna viðhorf til verkefnisins árið 2020. Af þeim sem svöruðu taldi 71% frekar eða mjög ólíklegt að 10% auglýstra starfa yrðu án staðsetningar fyrir árslok 2024. Þá töldu 27% aðspurðra mjög eða frekar líklegt að ráðið yrði í starf án staðsetningar á næstu 24 mánuðum en 63% töldu það mjög eða frekar ólíklegt. Könnunin náði til 117 ríkisstofnana á höfuðborgarsvæðinu og var svarhlutfallið 58%.

Tillögur settar fram

Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem miða að því að fjölga auglýsingum ríkisstarfa án staðsetningar á næstu árum. Lagt er til að ráðuneytin fylgi því vel eftir við stofnanir að þær ráði í störf án staðsetningar, að fræðsla verði aukin og loks að tölfræði og viðmið um kostnaðarþátttöku verði gerð tiltæk og aðgengileg.

Frá því að verkefnið var sett af stað hefur ýmsum áföngum verið náð. Greining hefur verið gerð á ríkisstörfum, gagnvirkt kort birt á vef Byggðastofnunar með upplýsingum um húsnæði fyrir störf án staðsetningar, leiðbeiningar verið gefnar út og staðlaður texti birtur í atvinnuauglýsingum fyrir störf án staðsetningar. Þá hefur málþing verið haldið um verkefnið og lagt til að fjármagn yrði sett í verkefnið í tillögu um endurskoðaða byggðaáætlun fyrir tímabilið 2022-2036.

Hvar eru ríkisstörfin?

Í skýrslunni er fjallað um fjölda og staðsetningu stöðugilda hjá ríkinu. Í árslok 2019 voru íbúar á Íslandi 364.134 og stöðugildi ríkisins 24.979. Fleiri konur eru í þessum stöðugildum eða 15.716 á móti 9.263 körlum. Á árinu 2019 fjölgaði stöðugildum um 199 á landsvísu, eða 0,8%. Meðaltal sex ára (2014-2019) sýnir að 64,1% landsmanna búa að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu en þar er hlutfall stöðugilda ríkisins 71,3%. Á landsbyggðinni er hlutfall íbúa 35,9% og stöðugilda ríkisins 28,7%.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum