Hoppa yfir valmynd
10. september 2021 Innviðaráðuneytið

Skýrsla um vinnu- og skólasóknarsvæði og almenningssamgöngur

Skýrsla sem Byggðastofnun tók saman um vinnu- og skólasóknarsvæði og almenningssamgöngur fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur verið gefin út. Í skýrslunni eru sérstakar svæðagreiningar, þar sem m.a. er fjallað um styrkleika og veikleika hvers svæðis en einnig áskoranir með tilliti til almenningssamgangna. Þá eru birt uppfærð kort af vinnu- og skólasóknarsvæðum með hliðsjón af samgöngubótum undanfarinna ára og eftir atvikum lagðar fram tillögur að áherslum og aðgerðum til úrbóta.

 Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vinnur markvisst að því að samhæfa áætlanir í málaflokkum sínum – byggðaáætlun, fjarskiptaáætlun, samgönguáætlun og stefnu í málefnum sveitarfélaga. Liður í samhæfingunni er að þær hafi allir sömu framtíðarsýn og meginmarkmið. Skýrslan er mikilvægt innlegg í þessa vinnu þannig að áætlanir ráðuneytisins stuðli sameiginlega að efla vinnu- og skólasóknarsvæði og almenningssamgöngur á landinu. Það muni hafa mikla þýðingu fyrir samfélagið og auka atvinnutækifæri um land allt.

Í skýrslunni kemur fram að samhæfing áherslna í áætlunum ráðuneytisins í tengslum við vinnu- og skólasóknarsvæði sé mikilvæg fyrir byggðaþróun og geti gagnast sem viðmiðunarsvæði þegar þjónusta og innviðauppbygging á sviði hins opinbera er skipulögð. Þá kemur fram í skýrslunni að mikilvægt sé að auka þekkingu á vinnusókn á Íslandi.

Skýrslan hefur þegar komið að góðum notum í vinnu við áætlanir ráðuneytisins, svo sem við gerð grænbókar um samgöngumál og tillögu til þingsályktunar um byggðaáætlun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum