Hoppa yfir valmynd
5. október 2021 Innviðaráðuneytið

Sjö verkefni á sviði almenningssamgangna fá úthlutað 36 milljónum

Almenningssamgöngur milli byggða. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki sem eru veittir á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Að þessu sinni var 36 milljónum króna úthlutað til sjö verkefna fyrir árin 2021 og 2022. Markmið með framlögunum er að styðja við áframhaldandi þróun almenningssamgangna um land allt.

Alls bárust umsóknir vegna níu verkefna og óskir um 76.956.293 kr.  en áætlaður heildarkostnaður þeirra verkefna nam samtals 149.968.433 kr.

Verkefnin sjö er hljóta styrk eru eftirfarandi:

  • Snæfellsnes – samræmt leiðakerfi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fær styrk til að vinna úr tillögum um samræmt leiðakerfi á Snæfellsnesi eftir fýsileikakönnun sem gerð var árið 2020. Tilgangurinn er að efla samgöngur á Snæfellsnesi. Styrkurinn nemur 2.000.000 kr.
  • Úttekt á aðgengi biðstöðva á landsbyggðinni. Öryrkjabandalag Íslands hlýtur styrk til að framkvæma heildstætt mat á ástandi stoppistöðva Strætó á landsbyggðinni og setja fram tillögur að úrbótum. Styrkurinn nemur 2.000.000 kr.
  • Samfélagsleg nýsköpun. Samlegð farþega- og póstflutninga á Norðausturlandi. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra hlýtur styrk til að vinna að frekari greiningu á hindrunum og umhverfi í farþega- og póstflutningum á Norðausturlandi. Þarfagreining hefur þegar verið gerð ásamt því að ræða við hagaðila. Nú er stefnt að því að vinna frekari greiningu ásamt því leita hagkvæmari lausna og fyrirmyndir sóttar til annarra landa. Styrkurinn nemur 3.000.000 kr.
  • Loftbrúin – hvernig reynist hún? Austurbrú ses. hlýtur styrk til að gera viðhorfskönnun meðal notenda Loftbrúar, sem hófst fyrir ári síðan, og að meta notagildi og hlutverk hennar út frá henni. Styrkurinn nemur 7.000.000 kr.
  • Borgarfjörður – samþætt leiðakerfi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fær styrki til að hefja tilraunaverkefni sem tryggir að íbúar dreifbýlis í Borgarbyggð geti nýtt ferðir skólabíla til að sækja vinnu eða þjónustu. Styrkur nemur 12.000.000 kr. sem deilist á tvö ár.
  • Nýtt kerfi almenningssamgangna í Fjarðabyggð. Fjarðabyggð hlýtur styrk til að þróa nýtt leiðakerfi almenningssamgangna, sem tók gildi 1. sept. sl. Verkefnið er 16 mánaða tilraunaverkefni en markmiðið er að gera Fjarðabyggð að einu atvinnu- og skólasóknarsvæði. Styrkurinn nemur 8.000.000 kr.
  • Heilsueflandi almenningssamgöngur í Langanesbyggð.  Langanesbyggð hlýtur styrk til að koma á almenningssamgöngum milli Bakkafjarðar og Þórshafnar og tvinna saman heildræna lýðheilsustefnu og notendamiðaðan frístunda- og tómstundaakstur. Byggð við Bakkaflóa hefur átt undir högg að sækja og verkefnið er liður í átaki gegn þeirri þróun. Styrkurinn nemur 1.200.000 kr.

Í valnefndinni sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, Ferðamálastofu, Magnús Karel Hannesson, fv. Sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Með valnefndinni störfuðu Árni Freyr Stefánsson sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar. Skipun valnefndar og mat umsókna var í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum