Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Stórbætt framsetning á reglugerðum

Framsetning á reglugerðum hefur tekið stórstígum framförum með nýjum vef reglugerðasafnsins á island.is/reglugerdir. Reglugerðir hafa verið aðgengilegar á rafrænu formi um nokkurt skeið en nú hefur verið stigið enn stærra og veigameira skref sem bætir allt aðgengi almennings og fagmanna að reglugerðum til mikilla muna. Á vef reglugerðasafnsins er nú ekki aðeins hægt að sjá nýjustu, gildandi útgáfu reglugerðar, þar sem breytingar hafa verið felldar inn í stofnreglugerð og þannig myndað samfellu, heldur er hægt rekja sig aftur í tímann og skoða dagrétta útgáfu sem var í gildi hverju sinni. Þannig er hægt að sjá breytingasögu hverrar reglugerðar fyrir sig. Vonast er til að þessi möguleiki spari mikinn tíma og fyrirhöfn og dragi jafnframt úr þeirri réttaróvissu sem skapast þegar fara þarf handvirkt yfir margar breytingareglugerðir til að komast yfir gildandi reglugerð. Þá er leit eftir númerum reglugerða og lykilorðum orðin mun handhægari og fljótvirkari, ásamt því að boðið er upp á ítarleit til að auðvelda enn frekar notkunarmöguleika safnsins.
Ekki er að efa að lögmenn, dómarar, laganemar og aðrir muni allir taka þessu skrefi fagnandi enda mikill vinnusparnaður og aukin nákvæmni sem fylgir nýja reglugerðasafninu. Að auki er vonast til þess að blaðamenn og almenningur fái þarna stórbættan aðgang að reglugerðum í skiljanlegu og aðgengilegu formi. Reglugerðir ná yfir mjög stóran hluta af því sem fram fer í samfélaginu og því er mikilvægt að þeir sem þær varða hafi greiðan aðgang að gildandi reglum.

Íslenska reglugerðasafnið hefur fengið nýtt heimili á miðlægri þjónustugátt hins opinbera á island.is/reglugerdir og er aðgangur öllum heimill og gjaldfrjáls.

island.is/reglugerdir

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
"Ljóst er að þetta mun einfalda störf lögmanna og dómara, en þetta mun líka stórbæta aðgengi almennings að reglugerðum . Það er mikilvægt fyrir samfélagið að allir hafa greiðan og skýran aðgang að lögum og reglum landsins, það er lykilatriði þegar kemur að ábyrgri lýðræðisþátttöku í samfélaginu. Nýr vefur reglugerðasafns stuðlar að því og stórbætir þjónustu hins opinbera. Við erum búin að greiða fólki leið í gegnum það sem oft var kallað reglugerðafrumskógurinn."

Andri Heiðar Kristinsson, Stafrænt Ísland.
"Þetta er eitt af fjölmörgum verkefnum sem sýnir þá hagræðingu og bætingu sem má gera á íslenskri stjórnsýslu með góðu samstarfi. Þessi breyting sem hefur orðið á reglugerðasafninu má líkja við tímavél þar sem hægt er að skoða breytingasöguna langt aftur."

Hvað er reglugerð?
Stjórnvöld, oftast ráðuneyti, tilheyra framkvæmdavaldinu og þau geta einungis sett reglur sem eru útfærsla á lögum sem Alþingi, löggjafarvaldið, hefur þegar sett. Sagt er að reglur og reglugerðir verði að eiga stoð í lögum og reglurnar megi ekki ganga lengra en lögin leyfa. Þegar ágreiningsmál koma upp er ekki nóg að vita hvaða lög gilda, heldur þarf að liggja fyrir hvaða útgáfa af viðeigandi reglugerðum var í gildi þegar málið kom upp.
Nýr vefur reglugerðasafnsins er samstarfsverkefni dómsmálaráðuneytis, Sýslumannsins í Vestmannaeyjum, Stafræns Íslands, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis í gegnum byggðaáætlun, sem og Byggðastofnunar. Tæknileg útfærsla var í höndum Hugsmiðjunnar í samstarfi við Stafrænt Ísland.

  • Stórbætt framsetning á reglugerðum - mynd úr myndasafni númer 1

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum