Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2021 Utanríkisráðuneytið

Fyrsti rammasamningur Íslands við UNFPA

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Ib Petersen, aðstoðarframkvæmdastjóri Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), skrifuðu í gær undir rammasamning um stuðning Íslands við UNFPA. Með samningnum formfestir Ísland stuðning sinn við stofnunina og fylgir eftir skuldbindingu í verkefninu Kynslóð jafnréttis sem forsætisráðherra Íslands tilkynnti á leiðtogafundi í París síðastliðið sumar. 

Samningurinn gildir til loka árs 2023 og leggur áherslu á svokölluð kjarnaframlög sem veita stofnuninni fyrirsjáanleika og sveigjanleika til að bregðast við þar sem þörfin er mest hverju sinni. Íslensk stjórnvöld þrefalda með samningnum kjarnaframlög til UNFPA á næstu tveimur árum og nema þau 100 milljónum króna árið 2022. 

Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna gegnir lykilhlutverki þegar kemur að þjónustu við þolendur kynferðisofbeldis á átakasvæðum og sinnir fæðingarþjónustu, mæðra- og ungbarnavernd. Jafnframt vinnur sjóðurinn með stjórnvöldum ríkja að því að forgangsraða þörfum kvenna og stúlkna í samræmi við markmið hans um að tryggja gerð fjölskylduáætlana, vinna að forvörnum gegn mæðradauða, kynbundnu ofbeldi og skaðlegum hefðum svo sem limlestingum á kynfærum kvenna og stúlkna.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum