Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2022

Föstudaginn 10. desember 2021, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2022, sbr. reglugerð nr. 1294/2021.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088), samtals 4.200 stk., á meðalverðinu 106 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 90 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 112 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093), samtals 5.600 stk., á meðalverðinu 106 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 30 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 114 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum úr tollskrárnúmeri (0603.1100), samtals 6.000 stk., á meðalverðinu 42 kr./stk.  Hæsta boð var 61 kr./stk. en lægsta boð var 19 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 61 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum úr tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals 27.000 stk., á meðalverðinu 44 kr./stk.  Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 10 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 58 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum og blómknöppum sem notað er í vendi…. úr tollskrárnúmerum (0603.1903, 0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999), samtals 371.250 stk. á meðalverðinu 40 kr./stk.  Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 5 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á meðalverðinu 54 kr./stk.

Atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

1.200

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.000

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

2.000

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Rósir janúar – júní 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.000

Grænn markaður ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

9.000

Samasem ehf

 

Afskorin blóm janúar – júní 2022

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.829

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

30.000

Grænn markaður ehf

134.421

Samasem ehf

 

Reykjavík, 16. desember 2021  

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 15 Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum