Hoppa yfir valmynd
21. desember 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vinningstillaga í samkeppni um þróun svæðisins við Keflavíkurflugvöll

Svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll séð úr suðaustri - mynd

Alþjóðlega hönnunar- og skipulagsstofan KCAP, með höfuðstöðvar í Sviss, varð hlutskörpust í samkeppni sem Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hélt um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll til ársins 2050. 

Í lok ársins 2019 var undirritað samkomulag milli Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Isavia Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Í samkomulaginu var Kadeco, félagi í eigu ríkisins, falið að leiða samstarfið. Kjarnaverkefni Kadeco er að leiða samstarf um að auka virði lands í eigu ríkisins með skipulagningu nýs þróunarsvæðis við flugvöllinn.

Forvali fyrir samkeppni um þróunaráætlun var hleypt af stað í maí á þessu ári á útboðsvef Evrópska efnahagssvæðisins. Alls bárust umsóknir frá 25 alþjóðlegum teymum um að fá að taka þátt í samkeppninni. Þrjú teymi voru valin til að skila mótuðum tillögum byggðum á efnahagslegri greiningu. Teymin samanstóðu af ólíkum fyrirtækjum, bæði erlendum og íslenskum, en til að tryggja að tillit væri tekið til íslensks samhengis og aðstæðna var lögð áhersla á aðkomu íslenskra samstarfsaðila. Í tillögum teymanna koma fram hugmyndir sem Kadeco hefur rétt á að nýta í framhaldinu.

Hver og ein tillaga var metin út frá nokkrum þáttum af matsnefnd skipaðri fagaðilum. Meðal þess sem lagt var mat á voru hönnun, hagrænir þættir og útfærsla þróunaráætlunar, en matsnefnd samanstóð af mismunandi aðilum fyrir hvern þátt.

Alþjóðlegt, þverfaglegt teymi frá KCAP með mikla reynslu stendur að vinningstillögunni. Meðal annars er lagt til að forgangsbraut verði lögð fyrir vistvæna fólksflutninga milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins, þar sem hún tengdist Borgarlínu. Farartæki sem tengd yrðu forgangsbrautinni ættu að komast hraðar á milli en einkabílar og nýtast vel farþegum og starfsfólki á flugvallarsvæðinu. 

Áhersla er lögð á það í starfi Kadeco að svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll þróist í takti við samfélagið og að við uppbyggingu verði sérstaklega horft til styrkleika Suðurnesja. Markmiðið hefur verið að móta heildstæða áætlun sem leggi grunn að þróunarkjarna fyrir atvinnulíf og samfélag á Suðurnesjum og dragi fram markaðslega sérstöðu svæðisins. 

Kadeco mun í framhaldinu vinna með teyminu frá KCAP, Isavia og sveitarfélögunum á Suðurnesjum að áframhaldandi útfærslu þróunaráætlunar svæðisins. 

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra: 

„Það er ánægjulegt að fylgjast með áframhaldandi vexti og þróun svæðisins við Keflavíkurflugvöll. Það liggja mikil tækifæri í Reykjanesinu öllu, sem er lykilsvæði þegar kemur að efnahagsuppbyggingu þjóðarinnar á komandi árum og áratugum. Hér er stigið stórt skref í að styrkja stöðu svæðisins til lengri tíma og stuðla að samkeppnishæfni þess og getu til að laða til sín alþjóðleg fyrirtæki og fjárfesta.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum