Hoppa yfir valmynd
22. desember 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Breytingar á staðgreiðslu um áramót

Í frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022 er tillaga að lagabreytingu um viðmið fyrir árlega uppfærslu skattleysis- og þrepamarka. Þessi breyting er síðasti áfangi kerfisbreytinga tekjuskatts einstaklinga sem kynntar voru árið 2019. Tillagan felur í sér að miðað verður við ársbreytingu vísitölu neysluverðs ásamt mati á þróun langtímaframleiðni. Miðað verður við 1,0% árlega aukningu framleiðni og það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir áramótin 2027-2028. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 5,1% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 6,1%.

Með fyrirvara um samþykkt Alþingis verða persónuafsláttur og þrepamörk eftirfarandi árið 2022.

2022

Á ári

Á mánuði

Persónuafsláttur:

646.993

53.916

Þrepamörk milli 1. og 2. þreps:

4.445.783

370.482

Þrepamörk milli 2. og 3. þreps:

12.481.275

1.040.106

Meðalútsvar á árinu 2022 verður samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarfélaga 14,45% og helst óbreytt milli ára. Við staðgreiðslu ber launagreiðendum að miða við meðalútsvarshlutfallið en þar sem meðalútsvarið helst óbreytt verða engar breytingar á staðgreiðsluhlutföllum ársins, þ.e. samanlögðum hlutföllum tekjuskatts og meðalútsvars. Af 69 sveitarfélögum eru 4 sveitarfélög sem breyta útsvarshlutfalli sínu árið 2022, öll til hækkunar. Alls leggja 54 sveitarfélög á hámarksútsvar. 3 sveitarfélög munu leggja á lágmarksútsvar.

Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða 178.577 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldagreiðslu launþega í lífeyrissjóð. Þá munu skattleysismörk tekjuskatts, sem eru þau mörk sem launþegi byrjar að greiða tekjuskatt til ríkisins, vera 330.368 kr. að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldagreiðslu launþega í lífeyrissjóð.

Tryggingagjald

Í ársbyrjun 2022 mun skatthlutfall almenns tryggingagjalds hækka um 0,25 prósentustig, úr 4,65% í 4,9%. Hækkunin kemur til vegna þess að lækkun gjaldsins árið 2021 gengur til baka. Var sú aðgerð tímabundin í eitt ár og hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda vegna efnahagsáhrifa kórónuveirunnar.

Tryggingagjald í heild hækkar úr 6,10% í 6,35%, sbr. meðfylgjandi töflu.

Ár

2021

2022

Almennt tryggingagjald

4,65%

4,90%

Atvinnutryggingagjald

1,35%

1,35%

Gjald í Ábyrgðarsjóð launa vegna gjaldþrota

0,05%

0,05%

Markaðsgjald

0,05%

0,05%

Tryggingagjald, samtals

6,10%

6,35%

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum