Hoppa yfir valmynd
30. desember 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Listasjóðir hækka árið 2022 - menning vex!

Framlög til verkefnasjóða og styrkja á sviði menningar, að meðtöldum launasjóðum listamanna, munu nema um 3,2 milljörðum króna á fjárlögum næsta árs. Til samanburðar námu framlög til þeirra um 1,9 milljarði árið 2017. Nemur hækkunin um 72%. Fóru framlögin mest í 3,9 milljarða árið 2020 vegna tímabundins framlags í máltækniverkefni fyrir íslensku í stafrænum heimi sem áætlað er að klárist á næsta ári.

„Menning og listir eru uppspretta öflugs samfélags en undanfarin ár höfum við markvisst unnið að sterkari umgjörð í þeim málaflokkum með góðum árangri. Á næsta ári munum við halda áfram á sömu braut en menningarmálin munu meðal annars fá nýtt heimili í nýju ráðuneyti, ný myndlistastefna fyrir Ísland verður kynnt, vinna við nýja tónlistarstefnu hefjast og ný sviðlistamiðstöð hefja starfsemi sína. Fjárframlög til sjóða á sviði menningar halda áfram að vaxa sem mun ótvírætt skila sér til baka til samfélagsins. Aukningin er í takt við stjórnarsáttmálann, þar sem tekið er skýrt fram að við ætlum að tryggja undirstöður íslensks menningar- og listalífs. Heimsfaraldurinn hefur haft óhjákvæmilegar afleiðingar fyrir menninguna okkar, en við ætlum að halda áfram að hlúa að henni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra, en t.d. má nefna að 100 m.kr verður varið til hækkunar á starfslaunum listamanna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum