Hoppa yfir valmynd
30. desember 2021 Utanríkisráðuneytið

Tvö hundruð milljónir króna í alþjóðlega mannúðaraðstoð

Tvö hundruð milljónir króna í alþjóðlega mannúðaraðstoð - myndWFP/Claire Nevill

Að mati Sameinuðu þjóðanna hefur þörf á mannúðaraðstoð aldrei verið meiri og eykst dag frá degi. Áætlað er að um 274 milljónir manna þurfi á aðstoð að halda á næsta ári, tæplega fjörutíu milljónum fleiri en á árinu sem er að kveðja. Skýrist það meðal annars af aukinni fátækt, stríðsátökum, áhrifum loftslagsbreytinga og COVID-19 heimsfaraldrinum.

Afganistan, Jemen og Eþíópía eru meðal þeirra landa þar sem þörfin fyrir mannúðaraðstoð er mikil. Í Afganistan glímir yfir helmingur þjóðarinnar, eða 22,8 milljónir manna, við fæðuóöryggi og í Eþíópíu er áætlað að 9,4 milljónir þurfi á matvælaaðstoð að halda. Í Jemen hefur neyðarástand ríkt lengi, en stríðsátök hafa geisað í landinu frá árinu 2015. Þá eiga Afganistan, Eþíópía og Jemen það jafnframt sammerkt að milljónir manna á flótta innanlands eru sérstaklega berskjaldaðar og þarfnast brýnnar aðstoðar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur ákveðið að úthluta 200 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í fyrrnefndum ríkjum, Afganistan, Eþíópíu og Jemen. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) hefur verið falið að ráðstafa framlaginu. Báðar stofnanirnar eru áherslustofnanir Íslands í mannúðaraðstoð.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum