Hoppa yfir valmynd
30. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Umsækjendur um embætti framkvæmdastjóra landskjörstjórnar

Umsækjendur um embætti framkvæmdastjóra landskjörstjórnar - myndHaraldur Jónasson / Hari
Alls sóttu 22 um embætti framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem auglýst var laust til umsóknar 3. desember 2021 en umsóknarfrestur rann út 20. desember sl. Þrír umsækjendur hafa dregið umsóknir sínar til baka. Landskjörstjórn mun skipa í embættið.
Með nýjum kosningalögum nr. 112/2021, verður sett á fót sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga til Alþingis og sveitarstjórna, forsetakjörs og þjóðaratkvæðagreiðslna.
Verkefni landskjörstjórnar eru undirbúningur og framkvæmd almennra kosninga, upplýsingagjöf og fræðsla til almennings, frambjóðenda, fjölmiðla, kjörstjórna og annarra, samvinna og samráð við viðeigandi aðila um framkvæmd kosninga, kosningarannsóknir og framþróun kosningaframkvæmdar, ráðgjöf til stjórnvalda um kosningar, gerð tillagna að reglusetningu málefnasviðsins og alþjóðlegt samstarf á sviði kosningamála. Loks er það verkefni landskjörstjórnar að annast samræmingu verklags kjörstjórna með því að birta fyrirmæli um undirbúning og framkvæmd kosninga. Framkvæmdastjóri verður forstöðumaður landskjörstjórnar og hefur umsjón með daglegum störfum hennar.

Umsækjendur eru:
1. Anton Helgi Steinarsson, verslunarstjóri
2. Ástríður Jóhannesdóttir , lögfræðingur
3. Björn Kristjánsson, viðskiptafræðingur
4. Bogi Agnar Gunnarsson, lögfræðingur
5. Einar Baldvin Stefánsson, lögfræðingur
6. Einar Mar Þórðarson, sérfræðingur
7. Gísli M. Auðbergsson, hæstaréttarlögmaður
8. Guðlaugur Jónasson
9. Hrönn Ingólfsdóttir, sérfræðingur
10. Jóhann Steinar Ingimundarson, viðskiptafræðingur
11. Jón Eggert Guðmundsson, líffræðingur og kerfisstjóri
12. Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur, MPM
13. Karl Gauti Hjaltason, fyrrv. sýslumaður og formaður yfirkjörstjórnar
14. Katrín Kristjana Hjartardóttir, sérfræðingur
15. Kolbrún Garðarsdóttir, lögmaður
16. Salvör Sigríður Jónsdóttir, lögfræðingur
17. Stefán Örvar Sigmundsson, nefndarmaður
18. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, lögmaður og framkvæmdarstjóri
19. Vilhjálmur Bergs, lögmaður

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum