Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Lilja við danska ríkisútvarpið: „Vil fá fleiri handrit til Íslands“

Frá heimsókn Lilju D. Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra í stofnun Árna Magnússonar  þar sem hún virti meðal annars fyrir sér Konungsbók eddukvæða. - mynd

Það er nauðsynlegt að Íslendingar fái til sín fleiri handrit frá Danmörku, hinn íslenska fjársjóð, sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, í viðtali við danska ríkisútvarpið, en þar ræddi hún um mikilvægi þess að auka veg og virðingu menningararfsins, að sýna handritin, ræða þau og rannsaka. Um 700 handrit eru í vörslu á söfnum í Danmörku, en sáttmáli var gerður um vörslu þeirra árið 1965 milli Íslands og Danmerkur.

Árið 2019 óskaði ráðherra eftir því að viðræður yrðu teknar upp aftur um að koma fleiri handritum til vörslu á Íslandi. Viðræður eru hafnar og miða að því um aukna samvinnu og framtíðarsýn um málefni íslenskra handrita sem hýst eru í Danmörku. Starfshópur skipaður fulltrúum beggja ríkja mun skila ríkisstjórnum landanna niðurstöðu sinni fljótlega.

„Við viljum fá þau lánuð til lengri tíma og við viljum vinna þetta með dönskum stjórnvöldum,“ sagði Lilja. „Ég er þeirrar skoðunar að handritin eigi að vera á Íslandi, hýst í nýju Húsi íslenskunnar. Við myndum leggja aukna áherslu á rannsóknir og að kynna þau fyrir næstu kynslóðum.“
Ráðherra beindi sjónum sínum einnig að mikilvægi handritanna sem grunni að bókmenntaarfi Íslands. 

„Bókmenntir eru hluti af sál Íslands. Við leggjum mikla áherslu á bókmenntaarfinn okkar og nútíma bókmenntir. Við sjáum mikla aukningu í bókaútgáfu og með honum varðveitum við tungumálið okkar.“

Til viðtals var einnig danski stjórnmálamaðurinn Bertel Haarder, forseti Norðurlandaráðs. Hann segir að til skoðunar sé að lána handritin til lengri tíma og að hlusta eigi á beiðni Íslendinga um að fá þau að langtímaláni. Þá sé tímabært að Danir leggi aukna áherslu á að kenna forníslensku og rannsaka handritin enn frekar.

Hægt er að hlusta á viðtal Lilju og Bertel Haarder við danska ríkisútvarpið hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum