Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Sigríður Lillý hættir sem forstjóri Tryggingastofnunar

Sigríður Lillý Baldursdóttir, fráfarandi forstjóri Tryggingastofnunar (t.v) og Sigrún Jónsdóttir, sem gegnir starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn (t.h).  - mynd

Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar (TR), hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri stofnunarinnar og mun hætta þann 6. febrúar næstkomandi. Sigríður Lillý hefur starfað sem forstjóri TR í rúm 14 ár og á hún að baki farsælan feril hjá stofnuninni sem spannar alls 17 ár.

Hefur félags- og vinnumarkaðsráðherra, í samráði við stjórn TR, farið þess á leit við Sigrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastýru á skrifstofu forstjóra og staðgengil forstjóra, að hún gegni starfinu þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

Sigrún hefur starfað hjá TR frá því í apríl 2019 en áður var hún kennslustjóri Háskólans á Bifröst í fjögur ár. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu af störfum á vettvangi velferðarmála en sem dæmi var hún fulltrúi í nefnd sem vann fyrstu áætlun stjórnvalda gegn ofbeldi á heimilum og kynbundnu ofbeldi, sem var birt árið 2006, og var á árunum 1991-1995 varamaður og síðar aðalfulltrúi í tryggingaráði. Sigrún hefur meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Starf forstjóra Tryggingastofnunar verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum