Hoppa yfir valmynd
1. mars 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Breyttar reglur um styrki vegna hjálpartækja fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum

Breyttar reglur um styrki vegna hjálpartækja fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum - myndHeilbrigðisráðuneytið

Sjúkratryggingar Íslands greiða nú styrki vegna tiltekinna hjálpartækja til íbúa hjúkrunarheimila sem áður hefur verið á hendi hjúkrunarheimilanna sjálfra að útvega og greiða fyrir. Þetta á t.d. við um tiltekin hjálpartæki vegna öndunarmeðferðar og blóðrásarmeðferðar, stoðtæki, stómahjálpartæki, göngugrindur, hjólastóla og fylgihluti með þeim og tölvur til sérhæfðra tjáskipta. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðir þessa efnis með gildistöku frá og með 1. mars. Markmið breytinganna er að bæta og auðvelda aðgengi íbúanna að hjálpartækjum. Að sama skapi léttir þetta kostnaði af rekstraraðilum hjúkrunarheimila sem nemur allt að 60 milljónum króna á ári.

Breytingin felur m.a. í sér að einstaklingur í heimahúsi sem nýtir sér tiltekin hjálpartæki líkt og hér um ræðir heldur þeim þegar hann flytur inn á heimilið, í stað þess að hjúkrunarheimilið útvegi honum önnur hjálpartæki í þeirra stað.

Kveðið er á um umræddar breytingar með reglugerð nr. 239/2022 um breytingu á reglugerð nr. 427/213 um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu og reglugerð nr. 238/2022 um breytingu á reglugerð nr. 760/2021 um styrki vegna hjálpartækja.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum