Hoppa yfir valmynd
8. mars 2022 Forsætisráðuneytið

Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra skrifstofu innri þjónustu

Alls bárust 23 umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu innri þjónustu í forsætisráðuneytinu. Umsóknarfrestur rann út 3. mars síðastliðinn.

Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af forsætisráðherra mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir um embætti við Stjórnarráð Íslands. Forsætisráðherra skipar í embættið til fimm ára.

Nöfn umsækjenda:

  • Ari Matthíasson, deildarstjóri
  • Ari Sigurðsson, framkvæmdastjóri
  • Arnar Freyr Guðmundsson, viðskiptafræðingur
  • Ásta Huld Iðunnardóttir, safnstjóri
  • Eydís Eyjólfsdóttir, mannauðsstjóri
  • Guðmar Guðmundsson, fjármálastjóri
  • Gunnar Guðjónsson, M.Sc.
  • Gunnlaugur Sverrisson, skrifstofustjóri
  • Harpa Ólafsdóttir, skrifstofustjóri
  • Herdís Hallmarsdóttir, lögfræðingur
  • Ingunn Sigríður Þorsteinsdóttir, rekstrar- og stjórnunarráðgjafi
  • Jónas Ingi Pétursson, sérfræðingur
  • Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður
  • Ólafur Helgi Halldórsson, M.Sc.
  • Ólöf Kristjánsdóttir, sérfræðingur
  • Perla Ösp Ásgeirsdóttir, M.Sc.
  • Ruth Elfarsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Sigríður Jóna Reykjalín Jónasdóttir, M.Sc.
  • Sigurlaug Ýr Gísladóttir, sérfræðingur
  • Sigurrós Dögg Hilmarsdóttir, hagfræðingur
  • Valdimar Björnsson, MBA
  • Viðar Helgason, leiðandi sérfræðingur
  • Zaw Myo Win, B.Soc.Sc.

Skrifstofa innri þjónustu er ein af fjórum skrifstofum forsætisráðuneytisins samkvæmt nýju skipuriti sem tekur gildi 1. apríl næstkomandi. Skrifstofan ber ábyrgð á rekstri, fjármálum og innri þjónustu þess ásamt því að vera miðstöð gæða- og umbótastarfs innan ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum