Hoppa yfir valmynd
17. mars 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Efnahagsráðgjafi viðskiptaráðherra

Jón Þ. Sigurgeirsson kemur til starfa í menningar- og viðskiptaráðuneyti frá og með 17. mars. Meðal helstu verkefna Jóns verða að veita ráðherra ráðgjöf í viðskipta- og efnahagsmálum ásamt því að sinna málefnum Norðurslóða. 

Jón starfaði um árabil í Seðlabanka Íslands, meðal annars sem framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs (2001-2006) og síðar framkvæmdarstjóri skrifstofu bankastjóra og alþjóðasamskipta (2008-2019). Hann starfaði jafnframt hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) í Washington, sem fulltrúi Norður- og Eystrasaltslanda í stjórn sjóðsins um nær átta ára skeið, þar til í janúar sl.  Jón var stjórnarmaður í grísku bankasýslunni í  fimm ár þegar unnið var að endurreisn gríska bankakerfisins og hann sat um skeið í stjórn Fjármálaeftirlitsins eftir fall íslensku bankanna.  Jón var einnig stjórnarformaður eignasafns Seðlabanka Íslands og sat í framkvæmdanefnd um afnám gjaldeyrishafta.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum