Hoppa yfir valmynd
23. mars 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Nær 3 milljörðum króna veitt til innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnir úthlutun úr landsáætlun um uppbyggingu innviða.  - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, gerði í dag grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingar innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir um 2,8 milljarða króna framlagi til næstu þriggja ára.

Í ár verður úthlutað rúmlega 914 milljónum króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða sem gerir kleift að halda áfram því mikilvæga verkefni að byggja upp efnislega innviði á ferðamannastöðum, s.s. göngustíga, útsýnispalla, bílastæði og salerni. Aukin áhersla er á langtímaáætlanir í uppbyggingu staða en einnig á aukna miðlun og merkingar, ekki síst á stöðum þar sem samspil er á milli náttúru og menningarsögulegra minja.

65 nýir staðir

Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum er stefnumarkandi áætlun sem Alþingi samþykkti 2018. Verkefnaáætlanir eru gerðar til þriggja ára og eru uppfærðar á hverju ári. Ný verkefnaáætlun sem ráðherra kynnti í dag nær til áranna 2022-2024.

Alls eru nú 151 verkefni á áætlun næstu þriggja ára á rúmlega 90 ferðamannastöðum, þar af 65 ný verkefni sem bætast við að þessu sinni. Þar má nefna uppbyggingu á Geysissvæðinu, byggingu útsýnispalls og göngustíga í Ásbyrgi, yfirbyggingu minja þjóðveldisbæjarins á Stöng í Þjórsárdal, skála með góðri heilsárs salernisaðstöðu í Vaglaskógi, vandaða göngustíga við Búrfellsgjá, áframhaldandi umbætur á aðgengi ofan við Gullfoss með steyptum stígum og frekari skref til bættrar aðstöðu við Jökulsárlón.

Mikill árangur náðst í að bæta innviði

„Landsáætlun um uppbyggingu innviða er verkfæri sem hefur sannað sig til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum um allt land,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. „Það er mikilvægt er að hlúa vel að náttúru og minjastöðum okkar, sem svo margir njóta að heimsækja. Áætlunin gefur fyrirsjáanleika og fjármagn til lengri tíma, en einnig svigrúm til að bregðast hratt og örugglega við óvæntu álagi vegna ferðamanna, eins og við höfum gert. Nú þegar við gefum verkefnaáætlunina út í fimmta sinn höldum við áfram vandaðri innviðauppbyggingu, sem ég veit að mun vernda viðkvæma náttúru og styðja við góða upplifun fólks á ferð sinni um landið.“

Mikill árangur hefur náðst í að bæta innviði um land allt og auka getu svæða til að taka á móti ferðamönnum, en á síðasta ári voru veittar 764 milljónir til slíkra verkefna, m.a. var aðstaða fyrir ferðamenn, ekki síst börn, stórbætt við Malarrif á Snæfellsnesi en einnig búið svo um hnútana að hægt væri að ráðast strax í nauðsynlegar endurbætur á innviðum í Hornstrandafriðlandinu sem nýtur stóraukinna vinsælda hjá innlendum og erlendum ferðamönnum.   

Uppbygging innviða og náttúruvernd

Landsáætlun um uppbyggingu innviða 2022-2024

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum