Hoppa yfir valmynd
30. mars 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Frumvarp um sorgarleyfi samþykkt í ríkisstjórn

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnti frumvarp um sorgarleyfi fyrir ríkisstjórn í gær og var það sent þingflokkum til afgreiðslu. Með frumvarpinu verður foreldrum á vinnumarkaði tryggt leyfi frá störfum auk þess sem þeir fá greiðslur til að koma til móts við tekjutap á tilteknu tímabili í tengslum við fjarveru frá vinnumarkaði í kjölfar barnsmissis.

Meginefni frumvarps um sorgarleyfi er að tryggja foreldrum á vinnumarkaði, sem verða fyrir barnsmissi, rétt til sorgarleyfis í sex mánuði sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á umræddu tímabili. Hámarksgreiðslur í sorgarleyfi vegna barnsmissis verða samkvæmt frumvarpinu 600.000 kr. á mánuði. Einnig er gert ráð fyrir að foreldrar geti nýtt rétt sinn til sorgarleyfis samhliða minnkuðu starfshlutfalli og einnig yfir lengra tímabil enda sýna niðurstöður rannsókna fram á mikilvægi þess að einstaklingar sem verða fyrir áföllum í lífinu haldi sambandi við vinnumarkaðinn eins og þeir treysta sér til hverju sinni. Markmiðið með frumvarpinu er að viðurkenna áhrif sorgarinnar vegna barnsmissis á fjölskylduna í heild, ásamt því að auka líkur á að foreldrar eigi farsæla endurkomu á vinnumarkað og taki frekar virkan þátt í samfélaginu í kjölfar barnsmissis.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra: „Það er mjög gleðilegt að koma fram með frumvarp um sorgarleyfi. Það er gríðarlegt áfall að missa barn og með þessu frumvarpi erum við að grípa betur utan um foreldra og fjölskyldur sem verða fyrir því áfalli, þannig að þau geti tekist betur á við sorgina án þess að hafa áhyggjur af tekjum eða vinnuskyldu.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum