Hoppa yfir valmynd
30. mars 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Samkomulag um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir 2023-2027

Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, við undirritun samkomulagsins.  - mynd

Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir árin 2023-2027 hefur verið undirritað af fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Í samkomulaginu, sem byggt er á lögum um opinber fjármál og endurnýjað er árlega, er byggt á eftirfarandi spá um afkomu og efnahag sveitarfélaga:

a. Dregið verði úr halla hins opinbera yfir tímabil fjármálaáætlunar og að í lok tímabilsins verði halli á rekstri hins opinbera ekki meiri en 0,7% af VLF. Með þeirri afkomuþróun er ætlað að hækkun skulda sem hlutfall af vergri landsframleiðslu stöðvist fyrir árslok 2026.

b. Afkomuhorfur sveitarfélaga hafa batnað frá fyrri áætlunum og gera forsendur áætlunarinnar ráð fyrir að dregið verði úr hallarekstri A-hluta sveitarfélaga yfir tímabilið eftir kórónuveirufaraldurinn. Halli á heildarafkomu sveitarfélaga fari þannig úr því að vera 0,7% af VLF árið 2022 í 0,4% af VLF 2023, 0,3% af VLF árin 2024 og 2025 og loks 0,2% halla árin 2026 og 2027.

c. Áætlanir um þróun launakostnaðar árin 2022–2024 byggjast á fjárhagsáætlunum sveitarfélaga. Árin þar á eftir er gengið út frá almennri forsendu um launaþróun sem svarar til 1,5% árlegra launahækkana umfram verðbólgu.

d. Rekstrarafkoma sveitarfélaga verði jákvæð og batni yfir tímabilið. Fjárfesting verði meiri en sem nemi rekstrarafgangi en þó þannig að varfærni sé gætt til að markmið um að stöðva skuldasöfnun sem hlutfall af VLF á tímabilinu náist.

e. Hækkun á skuldum sveitarfélaga sem hlutfall af VLF stöðvist eigi síðar en fyrir árslok 2026. Gangi forsendur fjármálaáætlunarinnar eftir er ekki útlit fyrir að grípa þurfi til sérstakra ráðstafana af hálfu sveitarfélaga til að skuldasöfnun þeirra stöðvist fyrir árslok 2026.

Í samkomulagi um markmið um afkomu og efnahag sveitarfélaga fyrir árin 2021–2025 var fjöldi verkefna tilgreindur sem aðilar voru sammála um að vinna sameiginlega að á gildistíma samkomulagsins. Þar á meðal voru heildarendurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga og á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, auk endurmats á útgjöldum vegna hjúkrunarþjónustu og annarrar þjónustu við aldraðra. Mörg þessara verkefna eru enn í vinnslu og er samkomulag um að áfram skuli unnið að þeim og að samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga, Jónsmessunefnd, hafi yfirumsjón með framkvæmd þeirra verkefna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum