Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2022. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til, afgreiðslu umsókna og reglur varðandi framlög.

Mikilvægt er að vanda til umsókna og skila nauðsynlegum upplýsingum og fylgiskjölum innan tilskilins frests. Ekki verður tekið við gögnum eftir að umsóknarfrestur er liðinn nema stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra óski sérstaklega eftir því.

Umsóknum ber að skila í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. maí 2022.

Umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og eru umsóknareyðublöðin aðgengileg á vefslóðinni: https://minarsidur.stjr.is.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum