Hoppa yfir valmynd
12. maí 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stuðningur við sveitarfélög vegna móttöku barna á flótta frá Úkraínu

Mennta- og barnamálaráðuneytið mun leggja fé til stuðnings sveitarfélögum þar sem börn á flótta frá Úkraínu og fjölskyldur þeirra eru með búsetu. Markmiðið er að brúa bilið fram að hausti með tímabundnum stuðningi við móttöku barnanna og skólastarf til að stuðla að virkri þátttöku þeirra.

Stutt er við fjölbreytt náms- og félagsleg úrræði sem mæta þörfum ólíkra aldurshópa barna og ungmenna 18 ára og yngri, s.s.:

  • frístundastarf,
  • íþrótta- og æskulýðsstarf,
  • sumarskóla,
  • vinnuskóla,
  • námskeið í íslensku og íslenskri menningu,
  • lífsleikninámskeið og -verkefni,
  • samfélagsfræðslu,
  • virkni yngstu barnanna.

Sveitarfélög geta sótt um fjárhagslegan stuðning sem nemur allt að 200.000 kr. á hvert barn á aldrinum 0-18 ára. Nánari upplýsingar um stuðninginn og umsóknarferlið verða sendar sveitarfélögum á næstu vikum.

Mennta- og barnamálaráðuneytið mun einnig veita sveitarfélögum stuðning með ráðgjöf og námskeiðum um móttöku barna á flótta. Ráðgjöf og námskeið verða skipulögð í samstarfi ráðuneytisins og Menntamálastofnunar við sérfræðinga háskóla og sveitarfélaga í móttöku barna á flótta.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum