Hoppa yfir valmynd
27. maí 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Þrír nýir skrifstofustjórar í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu

Frá vinstri: Ari, Sigríður og Jón Vilberg - mynd

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað í tvö embætti skrifstofustjóra hjá ráðuneytinu að undangenginni auglýsingu um störfin. Að loknu heildarmati í kjölfar skýrslu hæfnisnefndar var það mat ráðherra að Sigríður Valgeirsdóttir og Ari Sigurðsson skyldu skipuð í embættin.

Sigríður Valgeirsdóttir hefur tekið við embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumörkunar. Hún lauk BS gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1988 og doktorsprófi í sameinda- og frumulíffræði við læknadeild Uppsalaháskóla árið 1998. Sigríður lauk stjórnendaþjálfun á vegum Roche og London Business School árið 2011 og alþjóðlegri IPMA gráðu í verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík árið 2013. Hún hefur m.a. starfað sem verkefnastjóri hjá Urði Verðandi Skuld, sem stjórnandi og framkvæmdastjóri hjá Nimblegen Systems of Iceland LLc / Roche Nimblegen og sem framkvæmdastjóri framleiðslu hjá Roche Nimblegen á Íslandi. Þá starfaði Sigríður sem framkvæmdastjóri hjá Roche Dia Operations / Roche Pharma í Þýskalandi og sem verkefnastjóri hjá Decode Genetics á Íslandi. Frá árinu 2018 hefur hún verið sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra nýsköpunar í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Samhliða fyrri störfum hefur Sigríður einnig setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, svo sem hjá lyfjafyrirtækinu EpiEndo Pharmaceuticals, Nopef (The Nordic Project Fund) og í Háskólaráði Háskóla Íslands.

Ari Sigurðsson tekur við embætti sem skrifstofustjóri á skrifstofu framkvæmdar og eftirfylgni. Hann hefur lokið viðskiptafræði (cand.oecon.) frá Háskóla Íslands og MBA námi frá Norwegian Business School-B.I. í Osló. Ari, sem einnig er löggiltur verðbréfamiðlari, starfaði m.a. áður sem deildarstjóri hjá Sparisjóðabanka Íslands, fjármálastjóri Myllunnar-Brauða, framkvæmdastjóri Hjartaverndar og lána- og deildarstjóri hjá Íslandsbanka, áður Glitni banka. Þá hefur hann sinnt störfum og verkefnum á vegum Stjórnarráðsins, sem sérfræðingur í bankamálum við embætti sérstaks saksóknara og sem sérfræðingur á fjárlagaskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Síðustu ár hefur Ari starfað sem fjármálastjóri Fjármálaeftirlitsins og framkvæmdastjóri fjármála hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Skrifstofa framkvæmdar og eftirfylgni var sett á laggir við stofnun hins nýja háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis 1. febrúar sl. Helstu verkefni skrifstofunnar eru framkvæmd fjárlaga, samningagerð og samskipti við ríkisaðila. Skrifstofa stefnumörkunar var sett á laggir á sama tíma, en þar undir falla framtíðarsýn, fjármálaáætlun, frumvörp og alþjóðasamskipti. Báðar skrifstofur vinna þvert á málaflokka ráðuneytisins og fara þær sameiginlega með útfærslu á fjármálaáætlun og fjárlögum.

Þá hefur Jón Vilberg Guðjónsson verið fluttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu yfirstjórnar í ráðuneytinu. Skrifstofan fer með samhæfingu í starfi ráðuneytisins, annast samskipti við Alþingi og stofnanir þess og innri stjórnsýslu ráðuneytisins, mannauðsmál forstöðumanna stofnana ráðuneytisins, hefur yfirsýn og fylgist með starfi stjórna, nefnda og verkefnahópa á vegum ráðuneytisins. Þá heyrir skjalasafn og málaskrá ráðuneytisins undir skrifstofuna. Jón gegndi áður embætti skrifstofustjóra á skrifstofu háskóla og vísinda í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Jón Vilberg lauk embættisprófi í lögum frá Háskóla Íslands 1988 og LL.M. prófi frá Queen Mary, Lundúnaháskóla, í hugverka- og upplýsingatæknirétti 1998. Hann hefur átt sæti í netöryggisráði, áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar, verið ritari höfundaréttarnefndar og sinnt kennslu í alþjóðlegum höfundarétti, einkaleyfarétti og upplýsingatæknirétti á háskólastigi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum