Hoppa yfir valmynd
10. júní 2022 Utanríkisráðuneytið

Öryggis- og varnarmál og vináttutengsl Íslands og Lettlands í forgrunni Íslandsheimsóknar

Þórdís Kolbrún og Artis Pabriks á blaðamannafundi varnarmálaráðherra Norðurhópsins - myndUtanríkisráðuneytið/Sigurjón Ragnar

Breytt staða öryggismála var meginefni fundar dr. Artis Pabriks, varaforsætisráðherra og varnarmálaráðherra Lettlands, með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í gær. Opinberri heimsókn varnarmálaráðherrans hingað til lands lauk í dag. 

„Það er mikil hlýja í samskiptum Íslands og Lettlands. Við eigum ríka samleið í öryggis- og varnarmálum, sem aðilar að Atlantshafsbandalaginu, JEF og svo Norðurhópnum sem fundaði hér í Reykjavík í vikunni. Við erum sammála um hversu mikilvægt það er fyrir öryggi allrar Evrópu að Rússland tapi stríðinu,“ segir utanríkisráðherra.

Varnarmálaráðherrann fundaði einnig með Önnu Jóhannsdóttur, staðgengli ráðuneytisstjóra, og fleira embættisfólki úr utanríkisráðuneytinu, þar sem öryggispólitísk málefni og öryggis- og varnarsamstarf var í forgrunni. Ráðherrann átti einnig fund með Bjarna Jónssyni, formanni utanríkismálanefndar, og fleiri fulltrúum nefndarinnar, og fundaði með fulltrúum forsætisráðuneytis.

Í gær flutti ráðherrann erindi á málþingi á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, breska sendiráðsins og Varðbergs, þar sem sjónum var beint að nýjum öryggisáskorunum út frá sjónarhóli smáríkja í Norður-Evrópu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hélt opnunarávarp, eistneski netöryggissérfræðingurinn Marle Maigre flutti erindi, og pallborðsumræður fylgdu í kjölfarið.

Í ár eru fimm ár frá liðin frá því að samstöðuaðgerðir Atlantshafsbandalagsins í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi voru settar á fót. Ísland hefur stutt við samstöðuaðgerðina í Lettlandi með útsendum tímabundnum sérfræðingi á sviði upplýsingamála frá árinu 2020.

Á meðan heimsókninni stóð kynnti ráðherrann sér einnig starfsemi íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Teledyne Gavia, sem framleiðir og selur fjarstýrða kafbáta.

 

 

  • Artis Pabriks og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir á fundi sínum í gær. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum