Hoppa yfir valmynd
10. júní 2022 Innviðaráðuneytið

Veigamiklar úrbótatillögur til að auka öryggi notenda smáfarartækja

Á Laugavegi - myndÞórmundur Jónatansson

Í lokaskýrslu starfshóps um smáfarartæki eru kynntar sex tillögur til úrbóta til að auka öryggi notenda smáfarartækja og annarra vegfarenda og styðja við notkun fjölbreyttra umhverfisvænna fararskjóta með öruggum hætti. Lagt er til að skýr mörk verði sett varðandi ölvun ökumanna, aldursmörk ökumanna verði 13 ár og bannað verði að breyta hámarkshraða ökutækja. Þá er lagt til að umferðarfræðsla verði með skýrum hætti hluti aðalnámskrár grunnskóla. Skýrslan verður höfð til hliðsjónar við undirbúning frumvarps til breytinga á umferðarlögum sem lagt verður fram á Alþingi næsta vetur.

Smáfarartækjum, aðallega rafhlaupahjólum, hefur fjölgað ört á síðustu árum. Í skýrslunni segir að þægindi og aukin vitund um umhverfisáhrif umferðar stuðli að þessum vexti en ávinningur samfélagsins felist m.a. í minni umferðartöfum í þéttbýli og minni mengun frá umferð.

Alvarleg slys algeng

Athugun á slysagögnum leiddi í ljós að slys eru algeng. Árið 2021 var hlutfall þeirra sem voru á rafhlaupahjóli meðal alvarlega slasaðra orðið 17% en akstur á rafhlaupahjólum er innan við 1% af allri umferð. Þá kom í ljós að 40% þeirra sem slasast alvarlega á rafhlaupahjóli voru á ferð á milli kl. 23 og 04 á föstudags- og laugardagskvöldum. Margir þeirra reynast einnig ölvaðir við komu á slysadeild Landsspítala. Í könnun um aksturshegðun kom í ljós að 40% ungra vegfarenda (18-24 ára) hafa ekið tækjum undir áhrifum áfengis. Loks er algengt að börn undir 10 ára aldri komi á slysadeild eftir óhöpp við akstur rafhlaupahjóla.

„Við þurfum að hafa hraðar hendur við að tryggja umferðaröryggi allra þeirra sem kjósa að nota smáfarartæki. Tillögur starfshópsins eru því mikilvægt innlegg í endurskoðun umferðarlaga með tilliti til þessa nýja ferðamáta,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Tillögur hópsins til úrbóta eru eftirfarandi:

  1. Nýr flokkur ökutækja: Nýr ökutækjaflokkur smáfarartækja verði innleiddur í umferðarlög. Í reglugerð verði að finna nánari flokkun smáfarartækja eftir gerð og eiginleikum. Miðað verði við að smáfarartæki séu ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 km/klst. Hjól sem eru yfir settum mörkum verði ekki leyfileg í umferð.
  2. Ölvun ökumanna: Sett verði hlutlæg viðmið sem feli það í sér að refsivert verði að stjórna smáfarartæki ef magn áfengis er meira en 0,5 ‰ í blóði ökumanna, eða 25 mg vínanda í hverjum lítra lofts sem er sambærilegt við mörk við akstur vélknúinna ökutækja. Sektir vegna brota verði hækkaðar í forvarnarskyni og miðað við að ljúka málum á staðnum með greiðslu sektar, fremur en að handtaka ökumenn og færa á lögreglustöð til skýrslutöku og blóðrannsóknar, ef hjá því verður komist.
  3. Aldur ökumanna: Aldursmörk ökumanna aflknúinna smáfarartækja verði 13 ár en hjálmaskylda miðist við yngri en 16 ára.
  4. Almennt bann við því að breyta hámarkshraða: Lagt verði bann við breytingum á hraðastillingum aflknúinna smáfarartækja, léttra bifhjóla og rafmagnsreiðhjóla.
  5. Færni ungmenna í umferð: Í umferðarlögum segir að umferðarfræðsla skuli fara fram í leik-, grunn- og framhaldsskólum og að ráðherra sem fer með fræðslumál ákveði nánari tilhögun fræðslu í aðalnámskrá. Til að tryggja fylgni við lög er lagt til að ráðherra beiti sér fyrir því að umferðarfræðsla verði hluti af aðalnámsskrá.
  6. Akstur á götum: Ef tillögur starfshópsins hvað varðar ölvun við akstur og aldursmörk ganga eftir telur hópurinn að leyfa skuli akstur rafknúinna smáfarartækja í almennri umferð á vegum þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. eða lægri, enda getur veghaldari lagt sérstakt bann við umferð þeirra á einstökum vegum eða vegköflum, sé ástæða til.

Nánar um starfshópinn

Í starfshópnum sátu fulltrúar Vegagerðarinnar, Samgöngustofu, Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og ráðuneytisins.

Skýrsla starfshópsins var unnin í samráði við ýmsa hagsmunaaðila og að loknu opnu samráði á samráðsgátt stjórnvalda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum