Hoppa yfir valmynd
10. júní 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Viðbrögð vegna álags á bráðamóttöku Landspítala

Viðbrögð vegna álags á bráðamóttöku Landspítala - myndHeilbrigðisráðuneytið - Hari

Heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, Sjúkratryggingar Íslands, Landspítali, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðvar, heilbrigðisstofnanir allra heilbrigðisumdæma landsins, velferðarsvið Reykjavíkur, Læknavaktin, Samtök heilbrigðisfyrirtækja og Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins og í samræmi við ráðleggingar landlæknis, myndað viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu vegna alvarlegrar stöðu innan hennar. Kemur þessi alvarlega staða skýrast fram á bráðamóttöku Landspítalans þar sem öryggi sjúklinga er ógnað að mati landlæknis. Samstarf aðila þvert á heilbrigðiskerfið er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi og örugga bráðaþjónustu næstu mánuði.

Orsakirnar eru margþættar en þyngst vegur skortur á heilbrigðisstarfsfólki og skortur á úrræðum fyrir aldraða, færniskerta og fleiri viðkvæma hópa.

Mikill skortur er á heilbrigðisstarfsfólki á öllum heilbrigðisstofnunum um leið og það er mjög brýnt að starfsfólk fái langþráða hvíld og sumarleyfi. Einnig eykst álag á bráðahluta þjónustunnar með aukinni virkni samfélagsins á sumrin og auknum fjölda erlendra ferðamanna.

Unnið er eftir fremsta megni að því að auka heimaþjónustu og framboð á hjúkrunar- og endurhæfingarrýmum um allt að 125 á Suðvesturhorni landsins fyrir lok þessa árs.

Hlutverk viðbragðsteymisins er að útfæra tillögur ásamt tímasettri áætlun um aðgerðir til að takast á við þetta verkefni, fylgja eftir framkvæmd þeirra og tryggja virkt samstarf milli allra aðilanna.

Viðbrögð og aðgerðir fyrir næstu vikur fela m.a. í sér að:

  • Samhæfa aðgerðir og þétta samstarf allra aðila sem koma að bráðaþjónustu í heilbrigðiskerfinu.
  • Styrkja og auka heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgasvæðisins, Læknavaktina og Landspítala.
  • Efla starfsemi bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.
    - Liður í því er að bæta úrlestur myndrannsókna og úrvinnslu blóðrannsókna í samvinnu við Landspítala.
  • Auka þjónustu bráðadagdeildar Landspítala og stækka aðstöðuna.
  • Útbúa miðstöð tilvísana- og ráðgjafar innan Landspítala til að stýra betur aðflæði inn á spítalann, efla fjarþjónustu og samstarf milli stofnana.
  • Bæta ferla innan Landspítala til að stytta dvöl sjúklinga á bráðamóttöku spítalans.
    - Liður í því er að endurskoða meðferðarferla í öldrunarþjónustu og auka aðkomu fleiri sérgreina að þjónustu við sjúklinga á bráðamóttökunni.

Viðbragðsteymið mun halda reglulega samráðsfundi vegna stöðunnar meðan að þörf krefur og kalla aðra að borðinu eftir þörfum.

Nánar verður sagt frá viðbrögðum þegar þau hafa verið skilgreind frekar.

Fréttin hefur verið uppfærð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum