Hoppa yfir valmynd
21. júní 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samkomulag undirritað um að vinna að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs

Fjaðrárgljúfur - myndUnsplash/Jan Gemerle

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og kaupandi jarðarinnar Heiði í Skaftárhreppi hafa undirritað með sér samkomulag. Samkomulagið kveður á um að umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið fellur frá forkaupsrétti jarðarinnar nú, en kaupandinn  lýsir sig samþykkan því að vinna að friðlýsingu svæðisins enda telja aðilar hagsmunum gljúfursins best borgið með friðlýsingu.

Í apríl barst ráðuneytinu erindi þar sem óskað var afstöðu ríkissjóðs til nýtingar forkaupsréttar vegna sölu Heiði en hluti Fjaðrárgljúfurs, sem er á  náttúruminjaskrá, er innan jarðarinnar. Samkvæmt lögum um náttúruvernd hefur ríkissjóður forkaupsrétt að jörðum og öðrum landareignum sem eru að hluta eða öllu leyti á náttúruminjaskrá.

Er það mat ráðuneytisins að verndarþörf á svæðinu sé talsverð vegna mikils ágangs ferðamanna en hægt sé að ná markmiðum verndar án þess að ríkið gangi inn í kaupin. Með friðlýsingu svæðisins og samkomulagi við nýjan eiganda verður vernd svæðisins og nauðsynleg uppbygging sameiginlegt verkefni ríkisins og nýs eiganda.

Innheimta gjalda skal ekki verða til þess að skerða eða tálma frjálsa för einstaklinga, sem ekki nýta bílastæðið um hið friðlýsta svæði, eða grannsvæði þess samkvæmt reglum náttúruverndarlaga um almannarétt. Innheimta og ráðstöfun gjalda sem tekin kunna að verða vegna lagningu vélknúinna farartækja skulu alfarið renna til uppbyggingar þjónustu, reksturs og innviða fyrir þá sem ferðast um svæðið. 

Eigendur annarra jarða sem Fjaðrárgljúfur er hluti af hafa einnig lýst sig viljuga til að vinna að friðlýsingu gljúfursins.  

„Það er ánægjulegt að samkomulag hafi náðst við kaupanda Fjaðrárgljúfurs um vernd svæðisins og eðlilegt að ríkið og eigendur standi saman að uppbyggingu þessarar náttúruperlu sem ferðamenn njóta þess að heimsækja,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Forkaupsréttur ríkisins hvílir áfram á jörðinni komi hún aftur til eigendaskipta.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum