Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2022 Matvælaráðuneytið

Nýliðunarstuðningur í landbúnaði 2022

Nýliðunarstuðningur í landbúnaði 2022 - myndiStock/Pedro Carrilho

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði.
Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.

Þeir einstaklingar geta sótt um stuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:

  • Uppfylla skilyrði skv. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað
  • Eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
  • Eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
  • Hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning samkvæmt reglugerð þessari að teknu tilliti til 17. gr.
  • Hafa ekki hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2015-2016.
  • Hafa með sannarlegum hætti lagt út fyrir fjárfestingu annaðhvort með eigin fé eða lántöku.

Fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:

  • Yfirlýsing um að umsækjandi sé nýliði.
  • Upplýsingar um eignarhald lögaðila úr fyrirtækjaskrá RSK, sé um lögaðila að ræða.
  • Rekstraráætlun til 5 ára með greinargerð, unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
  • Afrit af þinglýstum kaupsamningi vegna fjárfestingar sem óskað er stuðnings við.
  • Afrit af reikningum fyrir kaupum.
  • Afrit af leigusamningi, ef við á.

Áhugasömum umsækjendum er bent á að kynna sér reglur um forgangsröðun í nýliðaumsóknum.

Umsóknum skal skila inn á www.afurd.is

Umsóknarfrestur er til 1. september.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
12. Ábyrð neysla og framleiðsla

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum