Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þjóðarhöll í íþróttum – framkvæmdanefnd hefur störf

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Gunnar Einarsson formaður framkvæmdanefndar og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra - mynd

Sameiginleg fréttatilkynning mennta- og barnamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar:

Framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum hóf störf í dag. Hlutverk framkvæmdanefndar er að leiða vinnu vegna hönnunar, útboðs og hvernig staðið verður að fjármögnun þjóðarhallar og undirbúa ákvörðun um útfærslu og rekstrarform.

Nefndinni er falið að útbúa tímasetta framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hallarinnar. Stefnt er að því að framkvæmdum verði lokið árið 2025.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra:

„Með stofnun framkvæmdanefndar færumst við skrefi nær því að hefja framkvæmdir á nýrri þjóðarhöll. Ég tel að við séum með öflugan hóp fagfólks sem eigi eftir að skila góðu verki.“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri:

„Það er mjög mikilvægt að koma undirbúningi Þjóðarhallar af stað. Henni er ekki bara ætlað að stórbæta umgjörð landsliða og leikja og vera fjölnota hús fyrir þjóðina. Megintilgangurinn með aðkomu borgarinnar að verkefninu er að auka og stórbæta aðstöðu til æfinga og keppni fyrir börn og unglinga í Laugardal. Þróttur og Ármann og skólarnir í hverfinu verða eftir þetta með fyrsta flokks aðstöðu.“


Mennta- og barnamálaráðherra og borgarstjóri með framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum og starfshópi um uppbyggingu þjóðarleikvanga í íþróttum á fyrsta fundi framkvæmdanefndar

Ríki og Reykjavíkurborg undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal hinn 6. maí sl.

Framkvæmdanefndin skilar reglulegum upplýsingum um framgang verkefnisins til starfshóps um uppbyggingu þjóðarleikvanga í íþróttum. Hún starfar í samráði við ráðgjafaráð skipað hagsmunaaðilum og öðrum notendum hallarinnar til að hún uppfylli þarfir sem flestra.

Framkvæmdanefnd um þjóðarhöll í innanhússíþróttum skipa:

  • Gunnar Einarsson formaður
  • Jón Viðar Guðjónsson fulltrúi ríkisins
  • Þórey Edda Elísdóttir fulltrúi ríkisins
  • Ólöf Örvarsdóttir fulltrúi Reykjavíkurborgar
  • Ómar Einarsson fulltrúi Reykjavíkurborgar

Ráðinn verður starfsmaður sem vinnur með framkvæmdanefnd.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum