Hoppa yfir valmynd
8. september 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Samræmt verklag heilbrigðisþjónustu í kynferðisbrotamálum í mótun

Heilbrigðisráðherra hefur ýtt úr vör verkefni sem miðar að því að vinna að samræmdu verklagi og úrræðum við móttöku þeirra sem leita til heilbrigðisstofnana landsins vegna kynferðisofbeldis. Liður í verkefninu verður að kortleggja og skýra afgreiðslu áverkavottorða og hvernig aðkomu réttargæslumanna skuli háttað í ofbeldismálum, þar með töldum kynferðisbrotamálum. Í samræmdu verklagi verður sérstaklega hugað að fólki sem er í viðkvæmri stöðu, s.s. vegna fötlunar, uppruna, kynhneigðar, kynvitundar og aldurs.

Ráðherra hefur falið Drífu Jónasdóttur sérfræðingi í heilbrigðisráðuneytinu að leiða verkefnið sem unnið verður í nánu samráði við allar heilbrigðisstofnanir landsins, sjúkrahúsin, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, embætti ríkissaksóknara og héraðssaksóknara, kynferðisbrotadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Ríkislögreglustjóra, auk fleiri stofnana og félagasamtaka sem koma að þessum málum á einn eða annan hátt.

Gert er ráð fyrir að tillögur um samræmda verkferla og úrræði við móttöku þeirra sem leita aðstoðar vegna kynferðisofbeldis innan heilbrigðisþjónustunnar liggi fyrir í lok ársins og verði þá kynntar heilbrigðisráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum