Hoppa yfir valmynd
24. september 2022 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra hvatti til samstöðu um alþjóðakerfið

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra á 77. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna - myndUN Photo/Ariana Lindquist

Sameiginleg ábyrgð þjóða heims á þeim gildum sem alþjóðakerfið hvílir á var leiðarstefið í ræðu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Innrás Rússa í Úkraínu, umhverfis- og loftslagsmál og mannréttindi, meðal annars út frá máli ungrar konu sem lést í varðhaldi Íran, voru á meðal helstu umfjöllunarefna ræðunnar.

Á 77. allherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York kynna aðildaríkin utanríkistefnu sína og sýn á alþjóðamálin. Fyrr í kvöld flutti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ræðu Íslands. Í upphafi ávarpsins áréttaði hún að mikilvægi allsherjarþingsins og að þar stæðu öll ríki heims jöfn. „Hvort sem við erum fulltrúar risaveldis eða eins af þeim rúmlega sjötíu aðildarríkjum sem hafa, líkt og Ísland, innan við eina milljón íbúa þá eigum við öll jafn mörg sæti við borðið, hvert okkar hefur eitt atkvæði og við megum öll láta rödd okkar heyrast úr þessum ræðustól,“ sagði ráðherra í ræðunni.

Í framhaldinu ræddiÞórdís Kolbrún fundarhamarinn sem Íslendingar gáfu Sameinuðu þjóðunum og notaður er í sal allsherjarþingsins. Sagði hún að þótt hann léti lítið yfir sér fylgdi honum dagskrárvald í umræðum valdamesta fólks heims og áletrunin „Með lögum skal land byggja“ minnti á þá reglu sem ríkja á í samskiptum þjóða. Eftir margra ára friðar- og uppbyggingartímabil væru nú blikur á lofti vegna styrjalda, náttúrhamfara og annarrar ógna. „Það er skylda okkar sem leiðtoga, ekki síst okkar sem tilheyrum yngri kynslóðum, að sofna ekki á verðinum í skjóli þess sem hefur áunnist undanfarna áratugi. Við verðum að láta einskis ófreistað að styðja við hið alþjóðlega kerfi og sannfæra íbúa heims um að þrátt fyrir vankanta sé það miklu betra en nokkur önnur leið til þess að leysa úr ágreiningi milli ríkja,“ sagði hún.

Stríðið í Úkraínu var ráðherra ofarlega í huga í ræðunni, sem hún sagði hrollvekjandi áminningu um hvernig heimurinn liti út ef eyðileggingaröfl fengju að ráða örlögum þjóða frekar en sköpunargeta. „Því vil ég árétta áður en ég fjalla um alþjóðamálin að öðru leyti að í þágu mannkyns verður Úkraína að sigra. Árás Rússlands verður að hrinda og þeim sem bera ábyrgð á voðaverkum í skjóli innrásarinnar verður að refsa.”

Þórdís Kolbrún fjallaði um ýmsar aðrar áskoranir samtímans, til dæmis náttúruhamfarir vegna hlýnunar jarðar, fátækt og fæðuskort og hvaða lærdóm mætti draga af heimsfaraldri kórónuveiru sem hefði afhjúpað alvarlegar brotalamir í viðbrögðum þjóða við hnattrænum krísum, en einnig að framtíðin myndi leiða í ljós hversu skynsamleg viðbrögð heimsins við faraldrinum voru. Þá minnti hún á nauðsyn þess að standa vörð um heilbrigði hafsins og sjálfbæra auðlindanýtingu og benti í því sambandi á hve vel hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna hefði reynst.

Mannréttindamál voru fyrirferðarmikil í ræðunni og lýsti ráðherra meðal annars áhyggjum af uppgangi kynþáttahaturs, gyðingahaturs og þjóðernisöfga víða um heim. Þá ætti tjáningarfrelsið víða í vök að verjast, ríki á borð við Rússland dreifðu vísvitandi áróðri og samsæriskenningum og kæfðu alla gagnrýna þjóðfélagsumræðu. Samfélög þar sem ekki mætti draga í efa yfirvöld og þeirra boðskap gætu ekki með nokkru móti talist frjáls. „Ef fólki á að takast að finna þær róttæku lausnir sem heimurinn þarf svo á að halda nú verður það að geta hnekkt kyrrstöðu. Það verður að geta látið skoðanir sínar í ljós og rætt viðkvæmustu málefni á opinskáan hátt. „Sviatlana Tsikhanouskaja berst fyrir þessum gildum í þágu fólksins í Belarús. Þetta eru gildin sem konur og stúlkur í Afganistan fá ekki notið. Og það er á grunni þessara gilda sem ekki verður við það unað að Masha Amini hafi látist af barsmíðum í Íran fyrir að bera ekki höfuðklút í samræmi við opinber fyrirmæli,“ sagði Þórdís Kolbrún.

Ráðherra lauk ávarpi sínu á brýningu til leiðtoga heimsins að taka höndum saman við að leysa þær miklu og mörgu áskoranir sem mannkyn stendur frammi fyrir. „Ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að ávarpa 77. allsherjarþingið og vera enn einu sinni minnt á að þrátt fyrir allt sé það hinn hefðbundni farvegur alþjóðsamskipta að þjóðir heims komi saman og skiptist á hugmyndum og skoðunum á siðmenntaðan hátt og þau ríki sem brjóta reglurnar hljóta nánast undantekningalaust fordæmingu,“ sagði Þórdís Kolbrún að lokum.

Ræðu utanríkisráðherra má lesa í heild sinni hér á Stjórnaráðsvefnum. 

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra á 77. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum