Hoppa yfir valmynd
29. september 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Íslensk samtímalist í nýtt húsnæði

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Sigurður Guðjónsson við verk Sigurðar á Feneyjatvíæringnum í ár.  - mynd

Með kaupum íslenska ríkisins á hluta af nýframkvæmdum Landsbankans við Austurhöfn mun íslensk samtímalist fá nýtt húsnæði en horft er til þess að sýningarrými verði á fyrstu hæð hússins á vegum Listasafns Íslands.

„Þetta er stórt skref fyrir íslenska samtímalist og verður af þessu mikill sómi. Í þeirri menningarsókn sem við erum er hér einstakt tækifæri til að tengja enn betur þá menningarstarfsemi sem fram fer í Hörpu og þetta nýja rými,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. En þess má geta að Listaháskóli Íslands mun taka til starfa í Tollhúsinu á komandi misserum.

Stjórnarráðið mun einnig hafa aðsetur í húsnæðinu- en starfsemi utanríkissráðuneytisins færð frá Rauðarársstíg að Austurbakka.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum