Hoppa yfir valmynd
12. október 2022 Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Undirritun tvísköttunarsamnings við Ástralíu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Kerin Ann Burns Ayyalaraju sendiherra Ástralíu gagnvart Íslandi undirrituðu samninginn. - myndUtanríkisráðuneytið

Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Ástralíu var undirritaður í utanríkisráðuneytinu í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Kerin Ann Burns Ayyalaraju sendiherra Ástralíu gagnvart Íslandi undirrituðu samninginn.

„Þrátt fyrir fjarlægðina er Ástralía mikilvægt viðskiptaland Íslands og löndin eiga auk þess í góðu samstarfi á alþjóðavettvangi. Samningurinn auðveldar íslenskum fyrirtækjum og almenningi að stunda fjárfestingar, viðskipti og atvinnu í Ástralíu. Hann hefur verið lengi í undirbúningi og þess vegna fagna ég mjög þessu skrefi sem við tókum í dag í átt að auknu viðskiptafrelsi þjóðarinnar. Um þetta snýst íslensk utanríkisviðskiptastefna“ sagði Þórdís Kolbrún að undirrituninni lokinni.

Markmið með gerð tvísköttunarsamningsins við Ástralíu, sem nær til tekjuskatta, er að koma í veg fyrir tvísköttun á viðskipti milli ríkjanna og vinna gegn skattaundanskotum. Með því að ryðja úr vegi skattalegum hindrunum mun samningurinn auðvelda viðskipti milli ríkjanna og hvetja til gagnkvæmra fjárfestinga. Ennfremur mun samningurinn jafna samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja á erlendum vettvangi og auka fyrirsjáanleika í viðskiptum.

Ástralía er mikilvægt viðskiptaland Íslands og hefur samningurinn lengi verið í undirbúningi. Bæði ríkin eiga aðild að OECD (Efnahags- og framfarastofnuninni) og er samningurinn í samræmi við stefnumörkun þess.

Samningurinn er þáttur í stefnu ríkisstjórnarinnar að svara ákalli viðskiptalífsins um fjölgun tvísköttunarsamninga. Á næstu mánuðum munu stjórnvöld beggja ríkja vinna að fullgildingu samningsins.

  • Samningurinn er þáttur í stefnu ríkisstjórnarinnar að svara ákalli viðskiptalífsins um fjölgun tvísköttunarsamninga. Á næstu mánuðum munu stjórnvöld beggja ríkja vinna að fullgildingu samningsins. - mynd
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Kerin Ann Burns Ayyalaraju ásamt íslensku samninganefndinni.  - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum