Hoppa yfir valmynd
14. október 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna og starfsemi sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins. Vakin er athygli á breyttum reglum um úthlutun styrkja.

Hægt er að sækja um tvenns konar styrki:


a) Verkefnastyrkir. Verkefnastyrkir eru veittir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum og hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna sem felast í því að:

    - Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
    - Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
    - Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf.

Verkefnastyrkir eru alla jafna ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Í þeim tilvikum þar sem verktími er lengur en eitt ár er heimilt að veita árlegan styrk til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum hverju sinni. Ekki eru veittir styrkir til sömu verkefna og hljóta styrk á fjárlögum eða verkefna sem falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga við það.


b)
Rekstrarstyrkir. Styrkir eru veittir til reksturs félagasamtaka sem hafa verið starfandi í að lágmarki þrjú ár. Rekstrarstyrkir geta verið veittir til tveggja ára í senn.

Umsóknarfrestur er til kl. 13.00 mánudaginn 14. nóvember 2022.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.
Úthlutun fer fram eigi síðar en 15. febrúar 2023.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins.

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum. Undir félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu eru umsóknareyðublöðin:

- Umsókn um styrk af safnliðum fjárlaga 2023 til reksturs félagasamtaka sem starfa á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.
- Umsókn um styrk af safnliðum fjárlaga 2023 vegna verkefna á sviði félags- og vinnumarkaðsmála.

Kynningarfundur

Félags- og vinnumarkaðsráðherra býður til kynningarfundar 20. október nk. þar sem farið verður yfir breyttar reglur um styrkúthlutun. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9 og hefst kl. 9.00.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum