Hoppa yfir valmynd
21. október 2022 Innviðaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

Starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga verði flutt til ríkisins

Áformað er að flytja starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga til ríkisins. Meginmarkmiðið er að einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga en hlutverk stofnunarinnar er að innheimta meðlög.

Tillögur þessa efnis eru kynntar í greinargerð verkefnisstjórnar, sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra skipaði, á grundvelli viljayfirlýsingar ríkis og sveitarfélaga frá janúar 2021, til að skoða fýsileika á tilfærslu verkefna við innheimtu meðlaga frá sveitarfélögum til ríkisins. 

Megintillaga verkefnisstjórnarinnar er að færa ábyrgð á innheimtu meðlaga frá sveitarfélögunum til ríkisins. Verkefnastjórnin leggur til að horft verði til þess að innheimtumiðstöðin á Blönduósi, sem starfrækt er af Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, taki við verkefninu og að sú útfærsla verði unnin í samvinnu við dómsmálaráðuneytið.

Verkefnisstjórnin telur mikilvægt að tryggja áfram starfsemi stofnunarinnar á Ísafirði og á höfuðborgarsvæðinu og að staðinn verði vörður um starfsöryggi og réttindi starfsfólks við yfirfærslu verkefnisins til ríkisins.

Úttekt Ríkisendurskoðunar

Vegna áforma um yfirfærslu verkefnanna var Ríkisendurskoðun fengin til að gera úttekt á verkefnum Innheimtustofnunar sveitarfélaga. Það var gert í september 2021 með samningi við innviðaráðuneytið (þá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið).

Úttekt Ríkisendurskoðunar á rekstri og starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga var birt fyrr í dag á vef embættisins. Ríkisendurskoðun leggur fram fjórar tillögur í úttekt sinni.

„Lagt er til að ábyrgð á innheimtu meðlaga verði endurskilgreind og að innheimtumönnum ríkissjóðs verði falin ábyrgð á verkefninu. Þá er lagt til að innheimtumönnum ríkissjóðs verði falið að meta þau verðmæti sem felast í kröfusafni stofnunarinnar, en í því sambandi telur embættið rétt að kröfusafnið í heild flytjist til ríkisins með samkomulagi við eigendur Innheimtustofnunar. Endanlegt uppgjör vegna kröfusafnsins fari þá fram að tilteknum tíma liðnum. Enn fremur er lagt til að gerð verði sérstök greining á gagnagrunni núverandi innheimtukerfis, sem og þeim kerfum sem til staðar eru hjá innheimtumönnum ríkissjóðs, eftir atvikum í samstarfi við Tryggingastofnun ríkisins. Loks er lagt til að viðtökuaðili verkefnanna, í samráði við ráðuneyti, marki stefnu um framkvæmd innheimtu meðlaga með skilgreindum mælikvörðum um árangur. Í því sambandi þarf m.a. að endurskoða lagaumhverfi meðlagsinnheimtu, skjalfesta verklagsreglur og koma á tilhlýðilegu gæðakerfi,“ segir á vef embættisins.

Áformin og helstu atriði úttektar Ríkisendurskoðunar voru kynnt á fundi með starfsfólki Innheimtustofnunar sveitarfélaga í morgun.

Í fyrstu verkefnisstjórn vegna undirbúnings yfirfærslunnar sátu fulltrúar frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Önnur verkefnisstjórn var skipuð í mars á þessu ári til að halda áfram undirbúningi málsins og í henni sátu tveir fulltrúar innviðaráðuneytisins, einn fulltrúi Sambandsins og einn fulltrúi Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum