Hoppa yfir valmynd
26. október 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Kaup á lyfinu Paxlovid til meðhöndlunar Covid-sjúklinga

Landspítali - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti

Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið um kaup á lyfinu Paxlovid til meðhöndlunar einstaklinga sem eru smitaðir af SARS-CoV-2 veirunni og  í hættu á að veikjast alvarlega af völdum hennar. Á hinum Norðurlöndunum hefur lyfið Paxlovid þegar verið tekið í notkun í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.

Rannsóknir sýna árangur af notkun Paxlovid í áhættuhópum og niðurstöður nýlegrar rannsóknar sem birtust í New England Journal of Medicine í september gefa vísbendingar um góðan árangur af notkun lyfsins meðal sjúklinga sem eru 65 ára og eldri og í aukinni hættu á alvarlegum veikindum. Smitsjúkdómadeild Landspítala mun stýra notkun lyfsins. Til að byrja með verða keypt lyf sem duga til meðferðar fyrir 1.500 einstaklinga. Þegar eru komin til landsins lyf sem tryggja meðferð fyrir 480 einstaklinga ef á þarf að halda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum