Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

​ Stuðningur efldur við umhverfis- og loftslagsvæn nýfjárfestingaverkefni

Diljá Mist Einarsdóttir - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað stýrihóp um eflingu umhverfis- og loftslagsvænna nýfjárfestinga.

Verkefnið hefur hlotið heitið „Græni dregillinn“ og er ætlað að efla stuðning við aðila sem sýna áhuga á að ráðast í loftslagstengd græn nýfjárfestingarverkefni á Íslandi. Markmið Græna dregilsins er að framfylgja stefnumótun stjórnvalda og atvinnulífs t.a.m. á sviði útflutnings, erlendrar fjárfestingar, nýsköpunar, orkumála, loftslagsmála og sjálfbærni, og fjölga störfum með áherslu á græna nýsköpun, aukna framleiðni og virkjun hugvits til þess að stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda, hringrásarhagkerfi og kolefnishlutleysi.

Er verkefninu ætlað að bæta ferla og þjónustu, allt frá hugmynd að rekstri, við nýfjárfestingarverkefni sem falla að þessari stefnumótun eða eru á skilgreindum þróunarsvæðum sveitarfélaga. Fyrir liggur að allmörg nýfjárfestingarverkefni eru í athugun víðs vegar um landið.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Það er mikilvægt að stuðla að auknum fjárfestingum í verkefnum sem leggja sitt af mörkum til að ná fram markmiðum stjórnvalda um minni losun gróðurhúsalofttegunda, hringrásarhagkerfi og kolefnishlutleysi. Við sem þjóð höfum dregist aftur úr hvað varðar stuðningsumhverfi við nýfjárfestingarverkefni og því er nauðsynlegt að gera betur með aukinni samvinnu ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila. Ég hef trú að græni dregillinn muni ná að efla atvinnulífið, auka samkeppnishæfni Íslands og treysta byggð á landsbyggðinni með grænum nýfjárfestingum og uppbyggingu grænna iðngarða.“

Gerður verður samstarfssamningur á milli umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Íslandsstofu um verkefnisstjórn verkefnisins varðandi stuðning við landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög og aðra hagaðila við að skilgreina og þróa tækifæri til nýfjárfestinga og bæta þjónustu við áhugasama fjárfesta.

 

Stýrihópinn skipa þau:

Diljá Mist Einarsdóttir, formaður

Halla Sigrún Sigurðardóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Guðlaug Guðjónsdóttir, Skattinum

Ólafur Árnason, Skipulagsstofnun

Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun

Hugrún Geirsdóttir, Umhverfisstofnun

Ragnar G. Kristjánsson, utanríkisráðuneytinu

Eggert Benedikt Guðmundsson, forsætisráðuneytinu

Ólafur Heiðar Helgason, fjármála- og efnahagsráðuneytinu

Sigríður Valgeirsdóttir, háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu

Arnheiður Ingjaldsdóttir, innviðaráðuneytinu

Ingvi Már Pálsson, menningar- og viðskiptaráðuneytinu

Björn Helgi Barkarson, matvælaráðuneytinu

Pétur Óskarsson, Íslandsstofu

Sigurður Ingi Friðleifsson, Orkustofnun

Hrönn Hrafnsdóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga

 

Kjartan Ingvarsson, lögfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu er starfsmaður stýrihópsins.

 

 

 

 


 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 13 Verndun jarðarinnar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum