Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Samið við Klíníkina um aðgerðir vegna endómetríósu

  - myndJohannes Jansson - norden.org

Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna endómetríósu. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn sem þar með hefur tekið gildi. Samningurinn kveður á um að þeir sem eru í brýnustu þörfinni njóti forgangs.

„Það hefur verið algjört forgangsmál í heilbrigðisráðuneytinu undanfarið að stytta biðlista. Í þeirri vinnu hefur áhersla verið lögð á víðtæka samvinnu og að nýta beri krafta allra sem veita heilbrigðisþjónustu í landinu til að tryggja jafnt aðgengi og jafnræði. Samningurinn um aðgerðir vegna endómetríósu er mikilvægur áfangi í slíkri samvinnu. Samtökin um endómetríósu á Íslandi hafa unnið mikilvægt og óeigingjarnt starf sem hefur ekki aðeins leitt til umbóta í heilbrigðisþjónustu við þá sem glíma við sjúkdóminn heldur líka vitundarvakningar í samfélaginu.“ Sagði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. 

Áfram unnið að umbótum við meðferð og greiningu á endómetríósu

Þverfaglegt endómetríósuteymi var stofnað á Landspítala árið 2017. Nú er Klíníkin einnig að byggja upp sérhæfða þjónustu fyrir þennan sjúkdóm. Með samningnum við Klíníkina fjölgar því úrræðum vegna endómetríósu og þjónustan eflist enn frekar.

Í ljósi mögulegra tækifæra til umbóta við greiningu og meðferð endómetríósu skipaði heilbrigðisráðherra fyrr á þessu ári starfshóp með fulltrúum frá endómetríósuteymi Landspítala, Samtökum um endómetríósu, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Hópurinn skilaði tillögum til úrbóta í apríl 2022 sem nú er verið að vinna úr og hrinda í framkvæmd. Tillögurnar snúa aðallega að aukinni fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks og einstaklinga, skipulagi þjónustunnar og jöfnu aðgengi að sérfræðiþjónustu óháð efnahag. Auk þess lagði hópurinn til styrkingu endómetríósuteymis Landspítala sem ráðherra fylgdi eftir með 30 m.kr. varanlegri aukafjárveitingu til styrkingar teymisins. Þarfir fólks með langvinna verki voru sérstaklega teknar fyrir í  vinnu hópsins þar sem mikil þörf er fyrir aukna áherslu á heildræna meðhöndlun verkja.

Um greiðslur sjúklinga sem fá þjónustu á grundvelli samningsins gilda almennar reglur um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum