Hoppa yfir valmynd
5. desember 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Þjónusta vegna ofbeldis – óskað eftir tillögum og ábendingum

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur skipað starfshóp sem falið er að skoða laga- og reglugerðarumhverfi þjónustu vegna ofbeldis og koma með tillögur um hvernig best megi tryggja þá þjónustu sem standa þarf bæði þolendum og gerendum ofbeldis til boða, einkum með tillit til Istanbúl-samningsins (samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi).

Starfshópinn skipa fulltrúar frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Jafnréttisstofu, Ríkislögreglustjóra, Ríkissaksóknara, Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Formaður hópsins er Arndís Soffía Sigurðardóttir. Áhersla er lögð á að starfshópurinn hafi víðtækt samráð við aðila sem starfa og veita þjónustu á þessu sviði en starfshópnum er falið að skila tillögum til ráðherra fyrir 1. mars 2023.

Starfshópurinn vill gefa þeim aðilum sem veita þjónustu til þolenda og gerenda ofbeldis eða koma að málaflokknum með einhverjum hætti, tækifæri á að senda inn ábendingar eða tillögur á netfangið [email protected] um hvernig best megi tryggja þolendum og gerendum ofbeldis framangreinda þjónustu.

Í Istanbúl-samningnum er fjallað um skyldur samningsaðila til að tryggja vernd og stuðning gegn ofbeldi, með lagasetningu eða öðrum hætti, þar með talið lögfræði- og sálfræðiráðgjöf, fjárhagsaðstoð, húsnæði, fræðslu, þjálfun og aðstoð við atvinnuleit. Jafnframt að þolendur hafi aðgang að viðeigandi heilsugæslu og félagsþjónustu og að samvinna allra viðkomandi stofnana og frjálsra félagasamtaka sé tryggð til að styðja og vernda þolendur og vitni fyrir öllum birtingarmyndum ofbeldis sem falla undir gildissvið samningsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum