Hoppa yfir valmynd
6. desember 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stöðumat KPMG á betri vinnutíma í dagvinnu

Starfsfólk stofnana er almennt ánægt með þær breytingar sem gerðar hafa verið með innleiðingu betri vinnutíma í dagvinnu. Þetta kemur fram í stöðumati sem KPMG vann fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið, en verkefnið felur í sér umbætur í starfsemi stofnana með breyttu skipulagi vinnutíma. Þá hefur stytting vinnuvikunnar ekki hækkað launakostnað þeirra 30 stofnana sem stöðumatið nær til. Einnig er þó bent á ýmis tækifæri til úrbóta og betri framkvæmdar verkefnisins.

Í kjölfar kjarasamninga 2019-2020 hafa stofnanir ríkisins haft heimild, skv. fylgiskjali, til að gera breytingar á skipulagi vinnutíma og stytta vinnuvikuna úr 40 stundum í allt að 36 virkar vinnustundir. Flestar stofnanir telja að heimsfaraldur kórónuveiru hafi hrint af stað hröðum breytingum og nýjum viðhorfum í menningu og starfsemi hins opinbera. Innleiðing vinnutímabreytinga og hámarksstytting hafi þar af leiðandi verið töluvert auðveldari þar sem stofnanir voru knúnar til að breyta mörgu hjá sér t.d. með breyttri fundarmenningu, fjarfundum, fjarvinnu og því hvernig starfsumhverfi er skilgreint.

Í skýrslu KPMG eru tiltekin ýmis atriði sem lúta að framkvæmd innleiðingar betri vinnutíma í dagvinnu og tækifærum til úrbóta.

Þannig er nefnt að meirihluti stofnana hafi farið strax í hámarksstyttingu vinnutímans án þess að fylgt væri eftir markmiðum um gagnkvæman ávinning, skilvirkni og gæði þjónustu. Í ríkiskerfinu skorti árangurs- og framleiðnimælingar og almennt þurfi að skerpa á markmiðasetningu og auka yfirsýn stjórnenda á mælikvörðum og gæðum þjónustu og innleiða verklag í því sambandi.

Þá er það mat KPMG að stofnanir séu margar hverjar hvorki af þeirri stærð, né hafi mannauð og skipulag til að takast á við jafn viðamiklar breytingar og verkefnið betri vinnutími gerir kröfur um. Knappur undirbúningstími hafi ekki hjálpað til og stofnanir ekki náð fyllilega að knýja fram umbætur áður en vinnutímabreytingarnar komu til framkvæmda.

Í skýrslunni eru eftirfarandi tækifæri til umbóta dregin fram:

  1. bætt nýting verkfæra um opinber fjármál,
  2. aukinn stuðningur við stofnanir,
  3. efld árangursstjórnun og eftirfylgni ráðuneyta,
  4. samstillt rekstrarmódel með aukinni skilvirkni og samræmingu í stofnanakerfinu,
  5. aukin áhersla á þjónustu og virðisaukandi starfsemi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið mun nýta niðurstöður stöðmatsins við næstu kjarasamningsgerð ásamt því að leggja áfram á það áherslu að styrkja stofnanakerfið og gera það burðugra til þess að sinna sínum kjarnaverkefnum.

Verkefnið um betri vinnutíma í dagvinnu má rekja til kjarasamninga sem gerðir voru 2019-2020 þar sem stofnanir ríkisins hafa heimild til að gera breytingar á skipulagi vinnutíma og stytta vinnuvikuna úr 40 stundum í allt að 36 virkar vinnustundir á viku. Helsta markmiðið er umbætur í starfsemi stofnana en breytingarnar eiga ekki að draga úr skilvirkni og gæðum þjónustu, né leiða til breytinga á launum eða launakostnaði. Verkefnið er tilraunaverkefni sem meta á fyrir lok samningstímans.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum