Hoppa yfir valmynd
10. desember 2022 Utanríkisráðuneytið

Áhersla á aðgerðir gegn refsileysi fyrir brot Rússa í Úkraínu

Borys Tarasyuk, fastafulltrúi Úkraínu hjá Evrópuráðinu og fyrrv. utanríkisráðherra landsins, á fundinum í Grósku í gær. - myndÁrni Sæberg

Í tilefni alþjóðlega mannréttindadagsins í dag 10. desember vekur utanríkisráðherra, í hlutverki sínu sem forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins, sérstaka athygli á mikilvægi aðgerða gegn refsileysi fyrir þau mannréttindabrot og aðra glæpi sem Rússar hafa framið í Úkraínu. Fastafulltrúi Úkraínu hjá Evrópuráðinu ræddi stöðuna í Úkraínu og ábyrgðarskyldu vegna glæpa í tengslum við innrásina á opnum fundi í Reykjavík í gær.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins og framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, Marija Pejčinović Burić, hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kallað er eftir sameiginlegum aðgerðum vegna mannréttindabrota og glæpa sem framdir hafa verið í innrásarstríði Rússlands í Úkraínu.

Við fordæmum eindregið þau hræðilegu mannréttindabrot sem Rússland fremur stöðugt, sum hver þau verstu sem sést hafa frá seinni heimstyrjöldinni. Við skorum á allt alþjóðasamfélagið að grípa til sameiginlegra og afgerandi aðgerða til að tryggja að allir sem hafa framið glæpi í Úkraínu í samhengi við innrás Rússa verði dregnir til ábyrgðar,“ segir í yfirlýsingunni.

Þær Þórdís Kolbrún og Burić minna í yfirlýsingunni á að umgjörð mannréttindaverndar í Evrópu sé sú sterkasta í heiminum, þökk sé Mannréttindasáttmála Evrópu. Þótt Rússland sé ekki lengur aðili að ráðinu eigi sáttmálinn enn við um brot sem framin hafa verið af Rússum fyrir 16. september 2022. Nú þegar veiti Evrópuráðið Úkraínu þjálfun og sérfræðiaðstoð um ákvæði mannréttindasáttmálans varðandi rannsóknir á glæpum gegn mannúð á stríðstímum.

Í yfirlýsingunni er ennfremur vikið að leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn verður í maí nk. „Ljóst er að eitt helsta viðfangsefni fundarins verður möguleg aðkoma Evrópuráðsins að því að tryggja að þeir sem hafa framið alvarleg mannréttindabrot í tengslum við innrás Rússlands í Úkraínu verði dregnir til ábyrgðar. Leiðtogafundurinn hefur það að markmiði að endurnýja skuldbindingu aðildarríkja að „samvisku Evrópu“ á hæsta stigi og leiðtogahlutverki Evrópuráðsins sem verndara mannréttinda í álfunni,“ segir í yfirlýsingu þeirra Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Marija Pejčinović Burić

Í tilefni af alþjóðlega mannréttindadeginum var fastafulltrúa og fyrrverandi utanríkisráðherra Úkraínu, Borys Tarasyuk boðið til Íslands til að ræða afstöðu Úkraínu og kynna á opnum fundi Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins til hvaða aðgerða sé hægt að grípa til með áherslu á Evrópuráðið. Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu flutti opnunarávarp og að loknu ávarpi Tarasyks fóru fram pallporðsumræður. Fundurinn fór fram í Grósku í Reykjavík í gær og var hann auk þess í beinu streymi og er hægt að nálgast upptökuna hér

 

 

  • Fastafulltrúar Íslands og Úkraínu hjá Evrópuráðinu, þau Ragnhildur Arnljótsdóttir og Borys Tarayuk, á fundinum í Grósku í gær - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum