Hoppa yfir valmynd
13. desember 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Stórbætt öryggi og betri upplýsingar til ferðamanna í Reynisfjöru

Hér má sjá hvernig 300 metra keðja meðfram bílastæðinu leiðir fólk eftir göngustíg og framhjá skiltunum. - myndFerðamálastofa

Uppsetningu viðvörunarkerfis í Reynisfjöru er nú lokið.

Það er hluti af vinnu samráðshóps ferðamálaráðherra sem stofnaður var um öryggismál í Reynisfjöru í sumar. Í samráðshópnum voru fulltrúar landeigenda, Mýrdalshrepps, Lögreglunnar á Suðurlandi, Ferðamálastofu, Landsbjargar, Veðurstofu Íslands og Vegagerðarinnar.  Hópurinn var í góðu samstarfi við Neyðarlínuna og naut liðsinnis fulltrúa Kötlu Geopark við gerð fræðsluefnis á skiltunum. Kolofon annaðist hönnun og útfærslu skiltanna og gaf vinnu sína.

„Aðstæður í okkar fallega landi eru að mörgu leyti frábrugðnar því sem ferðafólk þekkir í sínu umhverfi. Það er því hlutverk okkar sem gestgjafa að upplýsa gesti okkar um þær hættur sem leynast í okkar stórbrotnu náttúru til að tryggja öryggi þeirra eins og frekast er unnt en jafnframt að gæta að orðspori Íslands sem öruggs lands. Ég vil þakka öllum þeim sem komu að þessu verkefni kærlega fyrir þeirra framlag,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

Auk skiltanna var komið fyrir 300 metra langri keðju meðfram bílastæðinu sem leiðir fólk eftir göngustíg og framhjá skiltunum. Löggæslumyndavélum var komið fyrir á mastri í fjörukambinum. Myndum þaðan er streymt á varðstofu lögreglunnar á Suðurlandi á Selfossi. Sjá nánar á vef Ferðamálastofu

 

Áherslan á miðlun upplýsinga

Við gerð skiltanna var haft að leiðarljósi að skilti eru til upplýsingamiðlunar, þar eiga upplýsingar að vera aðgengilegar og áhugaverðar, útskýra hvað er hægt að gera á staðnum en ekki bara boð og bönn þó að á öllum skiltunum séu vissulega varúðarmerkingar. Sett voru upp eitt ljósaskilti, þrjú stór upplýsingaskilti og sex leiðbeinandi skilti. Eitt upplýsingaskiltanna er um hætturnar vegna öldunnar og er það við hlið ljósaskiltisins sem er beintengt ölduspárkerfi Vegagerðarinnar.

Fjörunni skipt í svæði eftir aðstæðum

Reynisfjara er aldrei lokuð en henni er skipt í svæði eftir aðstæðum. Þegar gult ljós logar á fólk ekki að fara inná gula svæðið og þegar rautt ljós logar á fólk ekki að fara inná rauða svæðið eða ekki lengra en að ljósaskiltinu. Gestir eiga þá að halda sig uppi á fjörukambinum en sjónarspilið þaðan er magnað á að horfa úr öruggri fjarlægð.

Góðar merkingar forsenda fyrir skýra upplýsingagjöf

Góðar merkingar er ein af aðal forsendum þess að hafa skýra upplýsingagjöf. Með nýju ljósaskiltunum, í bland við kort og skilaboða á þremur tungumálum, er vonast til að gestir Reynisfjöru átti sig á þeim hættum sem leynast á svæðinu og hagi ferðum sínum eftir því. Skilti, sama hversu góð þau eru, stoppa ekki neinn sem ætlar sér niður í flæðarmál sama hvað — en þau eru nauðsynleg til að vísa sem flestum á örugga staði til að njóta Reynisfjöru í allri sinni dýrð.

 

 

 

  • Með nýju ljósaskiltunum, í bland við kort og skilaboða á þremur tungumálum, er vonast til að gestir Reynisfjöru átti sig á þeim hættum sem leynast á svæðinu og hagi ferðum sínum eftir því. - mynd
  • Ljósaskilti er beintengt ölduspárkerfi Vegagerðarinnar. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum