Hoppa yfir valmynd
15. desember 2022 Matvælaráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir í Matvælasjóð í febrúar

Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar 2023. Verður það í fjórða sinn sem sjóðurinn úthlutar og er heildarúthlutunarfé sjóðsins að þessu sinni 580,3 milljónir króna. Umsóknarfrestur verður til miðnættis 28. febrúar 2023.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir Matvælasjóð skipta miklu fyrir innlenda matvælaframleiðslu. „Sjóðurinn hefur nú þegar sannað mikilvægi sitt fyrir þá vaxtarsprota nýsköpunar og þróunar sem má finna hjá innlendum matvælaframleiðendum. Um leið og við styðjum það framtak, setjum við stefnuna á sjálfbærni, hringrásarhagkerfi, fæðuöryggi og matvæli í hæsta gæðaflokki .“

Sjóðurinn veitir styrki í fjórum flokkum:

• Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd yfir í verkefni.

• Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.

• Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi, eru ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.

• Fjársjóður styrkir sókn á markaði, hjálpar fyrirtækjum að koma sínum verðmætum á framfæri.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér flokkana og handbókina vel áður en farið er í að vinna umsókn. Uppfærð handbók verður aðgengileg á heimasíðu sjóðsins þegar nær dregur.

Einungis verður tekið við umsóknum í gegnum Afurð sem er stafrænt stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
15. Líf á landi
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum