Hoppa yfir valmynd
20. desember 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

​Samstarf um starfstöð í náttúrurannsóknum á Bakkafirði

Hreindýr við gamla grunnskólann á Bakkafirði. - myndÞórir Örn Jónsson

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) hafa gert með sér samning sem hefur það að markmiði að koma á samstarfi um stofnun starfsstöðvar í náttúrurannsóknum á Bakkafirði. Auk SSNE taka Langanesbyggð og Náttúrustofa Norðausturlands þátt í verkefninu, en aðkoma fleiri aðila verður skoðuð í þeirri vinnu sem er framundan.

Markmið starfsstöðvarinnar er að styðja við sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda sem fyrir eru á svæðinu – en hluti verkefnisins snýr að greiningu á mögulegum hagrænum og samfélagslegum áhrifum aukinnar náttúruverndar, sem og aukinnar þekkingar á náttúrufari sem nýst getur við atvinnusköpun- og uppbyggingu.

Framlag til verkefnisins kemur úr stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036  en þar hafa verið skilgreindar 44 aðgerðir sem ætlað er að stuðla að jákvæðri þróun byggða. Ein þessara aðgerða kallast Náttúruvernd til eflingar byggðaþróunar (C9). Töluverð vinna og samtal hefur farið fram undanfarin misseri um möguleika á friðun Langaness að hluta og hefur Umhverfisstofnun, að beiðni ráðuneytisins, unnið úttekt á friðlýsingarkostum.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Það er ánægjulegt að geta styrkt Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra í gegnum Byggðaáætlun. Markmið þeirra með þessu verkefni er að skapa grundvöll fyrir því að komið verði á fót starfsstöð í náttúrurannsóknum við Bakkaflóa. Slík starfsemi myndi styrkja sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda svæðisins og ég vona að þetta verkefni auki líkurnar á að starfsstöðin verði að veruleika í náinni framtíð.“

Tillagan, að koma á fót starfsstöð í náttúrurannsóknum á Bakkafirði, er ekki ný af nálinni heldur var hún sett fram af ráðherranefnd um málefni byggðarinnar við Bakkaflóa en nefndin lauk störfum í nóvember 2018 og skilaði af sér skýrslu með tillögum til ríkisstjórnar. Skýrslan og tillögurnar voru samþykktar af verkefnisstjórn Betri Bakkafjarðar í nóvember 2019 sem hluti verkefnisáætlunar fyrir Brothættar byggðir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum