Hoppa yfir valmynd
22. desember 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Sigurður Kári skipaður skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

Sigurður Kári Árnason - mynd

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigurð Kára Árnason í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu.

Sigurður Kári lauk grunnnámi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og meistaranámi í lögfræði frá sama skóla árið 2012. Sigurður Kári hlaut leyfi til að starfa sem héraðsdómslögmaður árið 2012 og lauk jafnframt LLM gráðu frá London School of Economics and Political Science árið 2016.

Sigurður Kári starfaði á LEX lögmannsstofu á árunum 2010 til 2013 og sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis frá 2013 til ársins 2019. Frá árinu 2019 hefur hann gegnt starfi yfirlögfræðings í heilbrigðisráðuneytinu. Þá hefur Sigurður Kári verið stundakennari í stjórnsýslurétti við lagadeild Háskóla Íslands og verið formaður tilnefningarnefndar Skeljungs. Í störfum sínum hefur Sigurður Kári öðlast víðtæka reynslu og þekkingu á stjórnskipunar- og stjórnsýslurétti, af opinberri stjórnsýslu og starfsmannamálum hins opinbera.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum