Hoppa yfir valmynd
22. desember 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Þrjú verkefni hljóta styrk úr Glókolli

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra - mynd

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur tilkynnt um þau verkefni sem hljóta styrk úr Glókolli í haustúthlutun sjóðsins. Að þessu sinni hljóta þrjú verkefni styrki sem nema samtals einni milljón króna. Glókollur eru styrkir til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðuneytisins og er úthlutað tvisvar á ári skv. reglum sjóðsins. Opið er fyrir umsóknir allt árið um kring en umsóknir sem bárust fyrir 1. nóvember sl. voru teknar til greina við mat á umsóknum í haustúthlutun.

Við mat á umsóknum leit þriggja manna matshópur, skipaður af ráðherra, til þátta á borð við gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, sérstöðu verkefnis eða viðburðar, nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar verkefnis væru skýr.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk úr Glókolli haustið 2022:

Háskólafélag Suðurlands (250.000 kr.)

  • Uppsetning og kynning á Hreiðrum – frumkvöðlasetrum á Suðurlandi: Hreiðrin eru frumkvöðlasetur sem staðsett eru víða um Suðurland. Verkefnið felur í sér að kynna hugmyndafræðina í nágrenni setranna í því skyni að auka vitund frumkvöðla og íbúa á þeirri aðstoð og aðstöðu sem þar er veitt auk þeirrar samvinnu sem á sér stað milli Hreiðra.

Rata (500.000 kr.)

  • Hugmyndasmiðir: Framtíðin kallar á skapandi einstaklinga til að leysa flókin vandamál. Hugmyndasmiðir er fræðsluvettvangur sem gefur börnum kunnáttu, verkfæri og trú á eigin getu til að breyta heiminum í gegnum nýsköpun. 

Svava Lóa Stefánsdóttir (250.000 kr.)

  • Gott að heyra: Verkefni um þróun á tæknilega betri heyrnartækjum  sem henta öllum kynjum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum