Hoppa yfir valmynd
30. desember 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkissjóður kaupir alla hluti Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða í Landsneti hf.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Landsvirkjun, RARIK og Orkubú Vestfjarða hafa náð samningum um kaup ríkisins á 93,22% eignarhlut fyrirtækjanna í Landsneti hf. Samkvæmt kaupsamningum greiðir ríkið bókfært verð fyrir eignarhlut þeirra sem nemur um 439 milljónum Bandaríkjadala, eða um 63 milljörðum króna.

Landsnet var stofnað með lögum 2004 og tók til starfa 2005. Landsnet starfar samkvæmt sérleyfi og gegnir mikilvægu hlutverki á raforkumarkaði, en hlutverk félagsins er flutningur raforku og stjórnun raforkukerfisins. Eigendur voru í byrjun Landsvirkjun, Rarik og Orkubú Vestfjarða. Árið 2007 bættist Orkuveita Reykjavíkur í eigendahópinn og hefur eignarhald verið óbreytt síðan.

Í Orkustefnu til 2050  sem birt var haustið 2020 kemur m.a. fram að hlutlaust eignarhald sé grundvöllur gagnsæis og jafnræðis á raforkumarkaði og því mikilvægt að ljúka eigendaaðskilnaði flutningsfyrirtækisins þannig að það sé í beinni opinberri eigu. Kaup ríkisins grundvallast á þessu sjónarmiði og eru í samræmi við það sem kveðið er á um með nýlegum breytingum á raforkulögum og lögum um stofnun Landsnets.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra:

„Ég er ánægður með að breytt eignarhald Landsnets sé komið til framkvæmda.  Það hefur verið víðtæk samstaða um að eignarhald Landsnets sé best komið í beinni eigu ríkisins og/eða sveitarfélaga. Með þessum samningi er stigið fyrsta skrefið í að innleiða þessa breytingu hjá þessu mikilvæga fyrirtæki.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Þessi samningur er mikið fagnaðarefni. Landsvirkjun hefur lengi talað fyrir því að breyta eignarhaldi Landsnets og bent á að það sé óheppilegt að Landsnet, sem hefur einkaleyfi á flutningi raforku og kerfisstjórnun, sé í eigu orkuvinnslufyrirtækja og dreifiveitna. Óbreytt eignarhald samræmist illa meginhugmyndum um aðskilnað samkeppnisreksturs og grunnreksturs á orkumarkaði. Það er ánægjulegt að sjá að þessi breyting hefur nú raungerst.“

Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri RARIK:

„RARIK fagnar þessum samningi. Hlutverk á raforkumarkaði verða skýrari og sjálfstæði flutningsfyrirtækisins stuðlar að jafnræði og eðlilegri þróun orkumarkaðar á Íslandi. RARIK og Landsnet hafa átt góð og fagleg samskipti hingað til og svo mun verða áfram.“

Elías Jónatansson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða:

„Eignarhlutur OV í Landsneti hefur á undanförnum árum skapað tekjur sem hafa verið mikilvægur þáttur í rekstrarafkomu Orkubúsins. Með sölunni skapast hins vegar ný tækifæri fyrir Orkubúið að auka fjárfestingar í orkuinnviðum á Vestfjörðum og tryggja þannig Vestfirðingum betur sambærilega stöðu í raforkumálum og aðrir íbúar landsins búa við.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum