Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Skrifstofa ráðherra óháð staðsetningu 2023

Málefni háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins eiga erindi um land allt og mun ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, staðsetja skrifstofu sína víðs vegar um landið á kjörtímabilinu. Á hverri starfsstöð verður ráðherra með opna viðtalstíma þar sem öll áhugasöm eru velkomin í stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Þá verða fyrirtækjaheimsóknir einnig hluti af dagskrá ráðherra.

„Hugmyndin kviknaði þegar ég var að hugsa hvernig ráðuneyti sem væri búið til árið 2022 myndi starfa. Með þessu kynnist ég enn betur starfsemi sem tengist ráðuneytinu um allt land og fæ tækifæri til að prófa að starfa annars staðar en í Reykjavík,“ segir ráðherra. 

Staðsetningar skrifstofu ráðherra vorið 2023:

  • Borgarbyggð – miðvikudagur 11. janúar
  • Kópavogur – mánudagur 6. febrúar
  • Grindavík – fimmtudagur 23. febrúar
  • Rangárþing eystra – fimmtudagur 2. mars
  • Fjarðabyggð – fimmtudagur 16. mars
  • Fjallabyggð – þriðjudagur 28. mars
  • Hornafjörður – miðvikudagur 31. maí: Opinn viðtalstími í ráðhúsinu á höfn kl. 10:30. 
  • Vesturbyggð – fimmtudagur 27. apríl
  • Norðurþing – mánudagur 29. maí
  • Húnaþing vestra – tilkynnt síðar
  • Skagafjörður –mánudagur 5. júní

Staðsetningar skrifstofu ráðherra seinni hluta árs 2023 verða auglýstar síðar. Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar á dagskrá ráðherra.

Frá því að nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti tók til starfa í febrúar hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu. Í því felst að starfsemi ráðuneytisins er ekki bundin við einn ákveðin stað þrátt fyrir að aðalstarfsstöð þess sé staðsett í Reykjavík. Þannig geta starfsmenn ráðuneytisins unnið að heiman eða frá þeim stað á landinu sem best hentar hverju sinni. Ráðherra er þar engin undantekning og með því að staðsetja skrifstofu ráðherra um víðs vegar um landið gefst mikilvægt tækifæri til aukinnar tengslamyndunar og samstarfs við háskóla, stofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga um land allt.

Ráðherra hefur nú þegar staðsett skrifstofu sína í 10 mismunandi sveitarfélögum um land allt, en haustið 2022 vann ráðherra frá Snæfellsbæ, Mosfellsbæ, Árborg, Hafnarfirði, Akureyri, Reykjanesbæ, Ísafirði, Vestmannaeyjum, Akranesi og Múlaþingi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum